Innlent

Hundur í óskilum

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Anna fann þennan hund í dag.
Anna fann þennan hund í dag.
Uppfært 15:58

Hundurinn er fundinn. Anna Gunndís þakkar skjót viðbrögð lesenda Vísis.



Anna Gunndís Guðmundsdóttir fann hund á hlaupum úti á Granda fyrr í dag. Hún auglýsir eftir eigandanum.

„Ég er eiginlega alveg viss um að þetta sé tík. Hún er alveg yndisleg. Rosalega góð og virkilega flott. Hún er með köflótta ól en er ekki merkt að öðru leyti,“ segir Anna Gunndís og heldur áfram:

„Við sáum hana hlaupa eina úti á Granda frá Fiskislóð, yfir hringtorgið og Mýrargötu, Seljaveginn og inn Nýlendugötuna þar sem við fundum hana og var hún heppin að lenda ekki fyrir bíl. Við kölluðum á hana og hún kom inni í bílinn. Við vildum tryggja að hún myndi ekki verða fyrir bíl.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×