Hummer-ökumaður játar sök 27. júlí 2009 15:32
Í morgun játaði Jón Kristinn Ásgeirsson að hafa ekið Hummer-bifreið á 26 ára gamlan meistaranema í lögfræði og valda honum ævarandi örkumlun í janúar síðastliðnum. Jón hefur einnig verið ákærður ásamt Karli Halldóri Hafsteinssyni og Ríkharð Júlíusi Ríkharðssyni fyrir íkveikju í húsi við Kleppsveg í byrjun júní. Einn maður var í húsinu þegar þeir kveiktu í. Hann var í bráðri lífshættu og komst naumlega út. Mennirnir eiga yfir höfði sér allt að sextán ára fangelsi, minnst tvö ár. Það var um nótt, þriðju helgina í janúar, sem Jón Kristinn ók Hummer-jeppa Ásgeirs Þórs Davíðssonar, föður síns, niður Laugaveginn. Bíllinn var merktur Steak & Play, veitingastað í eigu Ásgeirs. Nokkrir voru með Jóni Kristni í bílnum. Á gatnamótunum við Vegamótastíg ók hann á 26 ára meistaranema í lögfræði og slasaði hann alvarlega. Jón Kristinn ók síðan af vettvangi. Lögreglan hafði hendur í hári hans skömmu síðar. Laganeminn var meðvitundarlaus þar til fyrir skömmu. Hann er verulega skaðaður eftir að keyrt var á hann og sýnir takmörkuð viðbrögð vegna áreitis. Hann var í lífshættu um tíma. Nú dvelur hann á Grensásdeild Landspítalans. Ekki er víst að hann komist nokkru sinni út í samfélagið á ný. Til er upptaka af slysinu úr verslun úrsmiðsins Franks Michelsens við Laugaveg, sem hefur verið notuð við rannsókn málsins. Jón Kristinn hefur nú setið í gæsluvarðhaldi í rúman mánuð vegna íkveikjunnar á Kleppsvegi ásamt þeim Karli og Ríkharði. Þar var maður á miðjum aldri hætt kominn. Hann komst út af eigin rammleik áður en húsið varð alelda. Húsið gjöreyðilagðist við brunann. Í gæsluvarðhaldsúrskurðum yfir fólkinu kom fram að í bíl þeirra, sem var fyrir utan húsið við Kleppsveg, fannst listi yfir fíkniefnaskuldir. Fyrirtaka var í málinu í morgun þar sem Hummer-málið var sameinað íkveikjunni. Aðalmeðferð fer fram síðar í vikunni.
Mest lesið Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Innlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Facebook lá niðri Erlent Borgin afþakkar risaeðlubein Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Fleiri fréttir Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Sjá meira