Formúla 1

Hulkenberg: Þegar ég heyrði að ég væri þriðji varð ég ekki vonsvikinn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Þrír hröðustu menn dagsins.
Þrír hröðustu menn dagsins. Vísir/AFP
Lewis Hamilton verður á ráspól á morgun í Austurríki. Hann náði sínum fimmta ráspól á tímabilinu í dag. Tímatakan var full af spennu enda fór að rigna á milli annarrar og þriðju lotu. Hver sagði hvað eftir tímatökuna?

„Ég hafði aldrei keyrt hérna í rigningunni áður en brautin þornaði hratt. Þetta var eiginlega alveg ótrúlegt. Ég tók smá áhættu til að skapa mér pláss á brautinni og það borgaði sig en það hefði getað endað illa,“ sagði Hamilton sem ræsir fremstur á morgun.

„Tímatakan var afar spennandi en ég er virkilega heppinn að hafa náð að taka þátt í henni. Bíllinn var illa farinn og meira að segja starfsmenn frá bíl Lewis komu til að hjálpa mér að komast út eftir óhappið á æfingunni. Ég er afar þakklátur liðinu fyrir það að hafa komið bílnum í lag,“ sagði Nico Rosberg sem varð annar í tímatökunni en fær fimm sæta refsingu af því hann þurfti nýjan gírkassa eftir óhappið á æfingunni.

„Ég er mjög glaður að vera hérna. Ég hefði getað endað ofar en þegar ég heyrði að ég væri þriðji varð ég ekki vonsvikinn,“ sagði Nico Hulkenberg sem varð þriðji en ræsir annar vegna refsingar Rosberg.

„Bíllinn var góður í dag. Undir lok tímatökunnar var þetta svolítið vafasamt en ég hefði kannski átt að taka meiri sénsa. Brautin þornaði hraðar en ég bjóst við svo ég hefði geta farið hraðar í sumar beygjurnar,“ sagði Sebastian Vettel sem varð fjórði en fær fimm sæta refsingu.

„Þetta var gaman, ég get ekki sagt að ég hafi búist við því þegar við komum hingað. Það er gott að ná fimmta sæti. Ég ræsi þriðji á morgun. Það gleður alla í liðinu svo við erum glöð í dag. Við höfum ekki getuna til að halda í við Mercedes en ég mun gefa mig allan í þetta á morgun,“ sagði Jenson Button sem ræsir þriðji en varð fimmti í tímatökunni. Hann færist upp út af refsingum Rosberg og Vettel.

„Liðið stóð sig fáránlega vel. Þau eru æðisleg. Þremur mínútum fyrir tímatökuna var bíllinn í bútum og þremur mínútum eftir að tímatakan hófst var verið að setja bílinn saman. veðrið breytist hratt hérna og við þurftum að bregðast við,“ sagði Toto Wolff, liðsstjóri Mercedes.


Tengdar fréttir

Lewis Hamilton á ráspól í Austurríki

Lewis Hamilton var fljótastur á Mercedes í tímatökunni fyrir austurríska kappaksturinn. Annar varð Nico Rosberg og Nico Hulkenberg varð þriðji á Force India.

Rosberg fljótastur á báðum æfingum í Austurríki

Nico Rosberg hjá Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins fyrir Formúlu 1 keppnina í Austurríki sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, heimsmeistarinn Lewis Hamilton varð annar á báðum æfingunum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×