Innlent

Hugsanlega íkveikja í Kópavogi

Gissur Sigurðsson skrifar
Slökkviliðið var kallað að nýbyggingu við Urðahvarf í Kópavogi í gærkvöldi þar sem reyk lagði frá húsinu.

Eldurinn reyndist eiga upptök í ruslahrúgu inni í húsinu, og var hann slökktur á skammri stundu án þess að tjón hlytist af. Eldsupptök eru ókunn, en grunur leikur á að eldurinn hafi kviknað af mannavöldum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×