Hrottafengin líkamsárás í miðbæ Reykjavíkur 29. júlí 2007 16:51 Bitu stóran bút af eyra konunnar. MYND/HJ
Kona á þrítugsaldri varð fyrir hrottafenginni líkamsárás þriggja kvenna um tvítugt í biðröð við skemmtistaðinn Sólon í miðborg Reykjavíkur á þriðja tímanum í nótt. Hún var dregin á hárinu eftir gangstéttinni, sparkað í hana og stór bútur bitinn af eyra hennar, að sögn sjónarvotta. Konan gekkst undir skurðaðgerð á eyranu á Landspítala Háskólasjúkrúahúsi í Fossvogi í dag. Ein árásásarkvennanna náðist og var færð á lögreglustöð, en sleppt að lokinni yfirheyrslu. Tvær aðrar stúlkur í biðröðinni urðu einnig fyrir árás stúlknahópsins en sluppu við meiriháttar meiðsli. Konan sem varð fyrir árásinni er 27 ára gömul. Samkvæmt heimildum Vísis hefur hún aldrei áður hitt árásakonurnar þrjár. Þær ætluðu að svindla sér fram fyrir fórnarlambið í röðinni. Þegar hún gerði athugasemd við það réðust þær umsvifalaust á hana. Fjölmörg vitni voru af atburðinum. Eitt þeirra segir árásarstúlkurnar hafa kastað bjórflösku í átt að fórnarlambinu. Samkvæmt frásögn sjónarvotta stöðvuðu tveir menn í biðröðinni árásina og hringdu í lögreglu, sem kom fljótt á staðinn. Dyraverðir staðarins voru hins vegar innandyra, nokkra metra frá árásinni. Lögregla á staðnum sagði að litið væri atburðinn sem stórfellda líkamsárás.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Eldur í Árbænum Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Fleiri fréttir 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Sjá meira