Innlent

Hróksmenn klyfjaðir páskaeggjum til Ittoqqortoormiit

Jakob Bjarnar skrifar
Hrafn Jökulsson er illa haldinn Grænlandsveikinni - en það er jákvæð veiki.
Hrafn Jökulsson er illa haldinn Grænlandsveikinni - en það er jákvæð veiki.
Til stóð að liðsmenn skákfélagsins Hróksins færu í dag til Ittoqqortoormiit en vegna veðurs hefur flugi til Grænlands verið frestað til morguns. Hrafn Jökulsson er forseti Hróksins og hann segir að svo virðist sem veðurguðirnir séu eitthvað andsnúnir skálistinni í dag.

Ittoqqortoormiit er afskekktasta þorp Grænlands, á 72° gráðu, þúsund kílómetra frá næsta byggða bóli. „Um páskana verður skákhátíð haldin í bænum, áttunda árið í röð. Þetta er annað verkefni á 12. starfsári Hróksins á Grænlandi, en alls hafa liðsmenn félagsins farið meira en 30 ferðir til Grænlands að útbreiða skák og efla vináttu nágrannaþjóðanna,“ segir Hrafn Jökulsson forseti Hróksins. Hann segir svo frá að Ittoqqortoormiit þýði þorp hinna stóru húsa.

Grænlandsveikin

Leiðangursmenn að þessu sinni eru Róbert Lagerman, varaforseti Hróksins, sem hefur farið í um 25 ferðir til að efla skák á Grænlandi og vináttu grannþjóðanna og Jón Birgir Einarsson, fastamaður í heimsóknum til  Ittoqqortoormiit. Hrafn hugar hins vegar að næstu verkefnum Hróksins á Grænlandi, en í maí verður haldin skákhátíð í Nuuk, höfuðborg Grænlands, til minningar um Íslandsvininn Jonathan Motzfeldt, fyrsta forsætisráðherra Grænlands. En, hvernig stendur á þessum Grænlandsáhuga?

„Sá sem einu sinni kemur til Grænlands verður aldrei samur á eftir. Það er talað um Grænlandsveiki, hún er reyndar mjög jákvæð veiki því Grænland er stórkostlegt land; ekki bara stærsta eyja í heimi, elsta land í heimi með ríka menningarhefð. Þarna býr stórkostlegt fólk sem við eigum mikla samleið með og við eigum að rækta tengslin og vináttuna á sem allra flestum sviðum. Skákin er dásamlegt verkfæri til þess.“

Dagur vináttu landanna tveggja

Hrafn segir Ittoqqortoormiit skipar sérstakan sess í hjörtum Hróksmanna eftir áralangt starf og þar eiga liðsmenn félagsins mörgum vinum að fagna. Á næstu dögum verður efnt til fjöltefla og skákmóta fyrir börn og fullorðna og á mánudag verður „Dagur vináttu Grænlands og Íslands“ haldinn hátíðlegur.

Í þorpinu eru um 450 íbúar, og er búið að skapa ríka skákhefð í þessum fræga veiðimannabæ, þar sem ísbirnir eru iðulega á vappi. Hróksmenn fara klyfjaðir páskaeggjum, vinningum, verðlaunum og öðrum gjöfum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Meðal bakhjarla ferðarinnar eru Aurelia velgerðarsjóður, Norlandair, Bónus, Gekon, Nýherji, 66° Norður, Hafnarfjarðarhafnir, Zo-on og Ísspor.

Öll börn fá páskaegg

Hróksliðar munu heimsækja barnaheimili, sjúkrastofnun og dvalarheimili aldraðra, en höfuðstöðvar hátíðarinnar verða í grunnskóla bæjarins. Þar mun Róbert Lagerman skákmeistari og varaforseti Hróksins tefla fjöltefli á skírdag, og á föstudag verður páskaeggjamót þar sem öll börn í bænum fá páskaegg frá Bónus. Á laugardag er komið að Norlandair-mótinu fyrir börn og fullorðna og á mánudag verður ,,Dagur vináttu Íslands og Grænlands" haldinn.

Hægt verður að fylgjast með leiðangrinum á Facebook-síðu Skákfélagsins Hróksins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×