Innlent

Hrinda verkefnum gegn matarsóun í framkvæmd

Atli Ísleifsson skrifar
Sérstök áhersla verður lögð á fræðslu almennings í því skyni að ýta undir vitundarvakningu um matarsóun.
Sérstök áhersla verður lögð á fræðslu almennings í því skyni að ýta undir vitundarvakningu um matarsóun. Vísir/Getty
Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur ákveðið að veita Umhverfisstofnun 1,8 milljónir króna til verkefna sem ætlað er að sporna gegn matarsóun. Með fjárveitingunni er fylgt eftir tillögum starfshóps um matarsóun sem skilaði ráðherra skýrslu í lok apríl síðastliðinn.

Í frétt umhverfis- og auðlindaráðuneytisins segir að sérstök áhersla verði lögð á fræðslu almennings í því skyni að ýta undir vitundarvakningu um matarsóun.

„Stefnt er að því að til verði ein vefgátt um matarsóun þar sem upplýsingum og leiðbeiningum sem þegar eru til staðar verður safnað saman og þau þannig gerð aðgengileg fyrir almenning. Gerð verður spurningakönnun þar sem könnuð verða viðhorf Íslendinga til matarsóunar og þá verður áhersla lögð á að ýta undir meðvitund starfsmanna og viðskiptavina á veitingastöðum um matarsóun. Loks verður ráðist í fræðsluátak um geymsluþolsmerkingar og geymsluaðferðir matvæla.

Verkefnin eru í samræmi við áherslur ráðherra sem eru að hafa góða umgengni mannsins við náttúruna og nýtni að leiðarljósi.

Þess má geta að nokkrar þeirra tillagna starfshópsins, sem ekki eru nefndar hér að ofan, eru í vinnslu hjá öðrum aðilum, s.s. Samtökum iðnaðarins, Landvernd og Sambandi íslenskra sveitarfélaga.

Starfshópinn skipaði umhverfis- og auðlindaráðherra haustið 2014 í framhaldi af málþingi sem ráðherra efndi til á Degi umhverfisins sama ár. Í starfshópnum sátu fulltrúar Umhverfisstofnunar, Matvælastofnunar, Samtaka iðnaðarins, Samtaka verslunar og þjónustu, Samtaka ferðaþjónustunnar, Bændasamtaka Íslands, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kvenfélagssambands Íslands, Vakandi - samtaka gegn sóun matvæla og Landverndar en hópurinn starfaði undir forystu umhverfis- og auðlindaráðuneytisins,“ segir í tilkynningunni.


Tengdar fréttir

Spyr ráðherra um matarsóun

Þingmaður Bjartrar framtíðar spyr ráðherra meðal annars um hvort umfang matarsóunar hafi verið mælt.

Hendum mat fyrir hundruðir þúsunda á ári

Matarsóun hefur verið talsvert í umræðunni undanfarið og ljóst að við getum öll tekið okkur á í þeim efnum. Það þýðir að meðalfjölskylda eyðir um 300 þúsund krónum á ári í mat sem fer í ruslatunnuna.

Umfang matarsóunar ókannað

Matarsóun hefur ekki verið skilgreind sérstaklega hér á landi í lögum eða reglugerðum. Þetta kemur fram í svari Sigrúnar Magnúsdóttur, umhverfis- og auðlindaráðherra, við fyrirspurn Brynhildar Pétursdóttur, þingmanns Bjartrar framtíðar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×