Viðskipti innlent

Hreinn gjaldeyrisforði yfir 400 milljarðar

Hreinn gjaldeyrisforði Seðlabankans er kominn yfir 400 milljarða kr. Þetta kemur fram í hagtölum bankans.

Gjaldeyrisforði Seðlabankans í heild nam 827,8 milljörðum kr. í lok júní og hækkaði um 119,2 milljarða kr. milli mánaða. Hreinn gjaldeyrisforði, þ.e. erlendar eignir að frádregnum erlendum skammtíma skuldum, nam um 408,3 milljörðum kr. í lok júní 2011.

Nettó útgreiðslur gjaldeyriseigna Seðlabankans og ríkissjóðs fyrir næstu 12 mánuði eru áætlaðar um 419,5 milljarðar kr. miðað við í lok júní 2011.





Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×