Fótbolti

Hreinir galdrar þegar Messi bauð upp á undirbúning ársins | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Argentínumaðurinn Lionel Messi galdraði fram einn flottasta undirbúning á marki á þessu ári þegar hann lagði upp mark fyrir Luis Suarez í 4-1 sigri Barcelona á Espanyol í spænsku deildinni í gær.

Messi fær reyndar ekki stoðsendinguna í markinu en honum tókst að gabba sex varnarmenn Espanyol áður en hann tók skotið sem markvörðurinn Robert Gago varði. Suarez fylgdi á eftir og skoraði.

Andrés Iniesta átti reyndar heilmikinn þátt í undirbúningi marksins því honum tókst að koma boltanum á Messi fyrir framan vítateiginn þrátt fyrir að Iniesta hafi misst jafnvægið og dottið niður á annað hnéð.

Það þurfti líka snilling til að gera gott úr þeirri erfiðu aðstöðu og það er ljóst að þegar þeir Iniesta og Messi eru inná vellinum þá geta ótrúlega flottir hlutir gerst.

Messi þakkaði fyrir sendinguna og réðst á vörnina sem var fjölmenn fyrir framan markið. Messi léta það þó ekki stoppa sig því hann sólaði hvern leikmann Espanyol á fætur öðrum á litlu sem engu svæði áður en hann kom sér í skotfærið.

Robert Gago náði eins og áður sagði að verja skotið en marknefið hans Luis Suarez þefaði upp frákastið og kom Barcelona-liðinu í 2-0. Leikmenn Espanyol voru svo ringlaðir eftir að hafa snúist í kringum Messi að það leið aðeins ein mínúta þar til að Barcelona var komið þremur mörkum yfir.

Hafi einhver efast um snilli Messi þá ætti hinn sami að horfa á myndbandið hér fyrir ofan.

Hér fyrir neðan má síðan sjá öll mörk Barcelona í leiknum en þau voru öll af betri gerðinni.

Mörk Barcelona



Fleiri fréttir

Sjá meira


×