Tónlist

Hreimur & Made in Sveitin með nýtt lag og myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Hreimur og félagar.
Hreimur og félagar. vísir
Hljómsveitin Hreimur & Made in Sveitin hefur verið að leggja lokahönd á þrjú lög sem koma öll út á þessu ári.

Fyrsta lagið heitir Heit er mín þrá og er núna komið í spilun. Vísir frumsýnir í dag myndband við lagið en það er hreyfimyndateikning og er, eins og lögin, það fyrsta af þremur.

Plata er svo væntanleg á næsta ári, en ekki er búið að ákveða nákvæma tímasetningu.

„Hljómsveitin verður með páskatúr þar sem að við byrjum á að spila hér í höfuðborginni á miðvikudagskvöldinu á Gullöldinni í Grafarvogi förum svo til Hafnar í Hornafirði á föstudaginn langa eftir miðnætti og svo loks á Neskaupsstað á laugardeginum,“ segir Hreimur Örn Heimisson í samtali við Vísi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×