Sport

Hrafnhildur fann alltaf mömmu og pabba í stúkunni

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir með Klaus-Jürgen Ohk sem þjálfar hana hjá SH.
Hrafnhildur Lúthersdóttir með Klaus-Jürgen Ohk sem þjálfar hana hjá SH. Vísir/ÓskarÓ
Hrafnhildur Lúthersdóttir náði á Ólympíuleikunum í Ríó besta árangri íslenskrar sundkonu í sögu Ólympíuleikanna þegar hún varð í sjötta sæti í 100 metra bringusundi.

Hrafnhildur fór í undanúrslit í báðum sínum greinum á leikunum og endaði einnig í 11. sæti í 200 metra bringusundi.

Foreldrar Hrafnhildar, Lúther Sigurðsson og Hrafnhildur Ragnarsdóttir, komu bæði alla leið til Ríó til að styðja við bakið á stelpunni sinni.

„Mamma og pabbi komu bæði. Það var frábært að sjá þau klædd íslensku fánalitunum upp í stúkunni. Ég tók alltaf eftir þeim," segir Hrafnhildur Lúthersdóttir.

„Þau eru búin að vera frábær í gegnum allt þetta ferli alveg síðan að ég var yngri og þau keyrðu mig til og frá æfingum. Ég get ekki þakkað þeim nógu mikið," segir Hrafnhildur. Hún þarf núna á öllum styrkjum sem hún getur fengið að halda enda á tímamótum nú þegar náminu er lokið og hún er ekki lengur á námsstyrk í Bandaríkjunum.

„Ég er að missa einhverja styrki sem ég hef fengið. Ég er ekki lengur í skólanum og þau styrkja mig ekki lengur heldur. Ég verð að finna mér einhverja vinnu eða eitthvað. Það er samt svo frábært að fá allan þennan stuðning frá Íslandi," segir Hrafnhildur.


Tengdar fréttir

Nesty: Hrafnhildur er yndisleg persóna

Hrafnhildur Lúthersdóttir synti sig inn í undanúrslit í báðum greinum sínum á Ólympíuleikunum í Ríó fyrst íslenskra kvenna. Hún synti í undanúrslitum í 200 metra bringusundi í nótt. Hrafnhildur hefur fyrrverandi Ólympíumeistara með

Hrafnhildur: Ég veit að mamma og pabbi elska mig ennþá

Hrafnhildur Lúthersdóttir komst ekki í úrslit í 200 metra bringusundi kvenna en náði engu að síður næstbesta árangri íslenskrar konu á í sundkeppni Ólympíuleikanna með því að taka ellefta sætið.

Hrafnhildur um Nesty: Í fyrra var ég að kenna honum hvað ég vil gera

Hrafnhildur Lúthersdóttir vill frekar fá meiri upplýsingar en minni og er því mjög ánægð með að hafa aðgang að báðum þjálfurum sínum á leikunum í Ríó. Hér eru bæði Klaus-Jürgen Ohk sem þjálfar hana á Íslandi og Anthony Nesty sem þjálfar hana úti í Flórída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×