Sport

Hrafnhildur er ekki hætt: Mér finnst ég eiga meira inni

Óskar Ófeigur Jónsson í Ríó skrifar
Hrafnhildur Lúthersdóttir.
Hrafnhildur Lúthersdóttir. Vísir/Anton
Hrafnhildur Lúthersdóttir lauk keppni á Ólympíuleikunum í Ríó í nótt þegar hún náði ellefta besta tímanum í undanúrslitum í 200 metra bringusundi. Hrafnhildur gaf það út eftir sundið að hún ætlaði að halda áfram að synda sem eru frábærar fréttir.

„Ég gæti sagt að þetta sé toppurinn og bara hætt en mér finnst ég eiga meira inni,  geti farið lengra og komist hærra," sagði Hrafnhildur Lúthersdóttir eftir undanúrslitin í 200 metra bringusundinu þar sem hún varð í ellefta sæti.

„Ég er ennþá að bæta mig og ég bætti mig á EM. Ég held að ég eigi meira inni og vona að ég geti allavega haldið áfram eitt í viðbót og farið á næsta HM. Ég vil gera betur þar," sagði Hrafnhildur.

„Fyrir fjórum árum var ég búin að segja það að þetta myndu vera mínir seinustu Ólympíuleikar, að ég myndi bara hætta eftir Ríó. Jafnvel var ég líka búin að segja það fyrir tveimur árum," sagði Hrafnhildur og bætti við:

„Eftir HM í fyrra þá sá ég að ég er þarna uppi með þeim. Ég hlýt því að geta haldið áfram. Ég tek allavega eitt ár í viðbót og sé hvernig þetta er. Þetta fer líka eftir því hvort að ég fái vinnu og hvort ég geti haldið mér við. Ef ég er ekki að fá neina styrki og svona þá verður þetta svolítið erfitt," sagði Hrafnhildur.

Það er ljóst að stjórnvöld, Íþróttasamband Íslands og þeir sem standa að afreksmálum þurfa að passa upp á að þessi frábæra sundkona fái tækifæri til að halda áfram að keppa við þær bestu í heimi. Hún hefur sýnt að hún er í hópi þeirra.


Tengdar fréttir

Hrafnhildur: Verst er að ég þarf að borða svo oft

Hrafnhildur Lúthersdóttir náði sjötta sæti í 100 metra bringusundi í úrslitasundi sem fór fram það seint um kvöld að það var komið fram yfir háttatíma hjá mörgum. Hún keppir strax aftur í dag, í þetta sinn í 200 m bringusundi og

Hrafnhildur: Ég veit að mamma og pabbi elska mig ennþá

Hrafnhildur Lúthersdóttir komst ekki í úrslit í 200 metra bringusundi kvenna en náði engu að síður næstbesta árangri íslenskrar konu á í sundkeppni Ólympíuleikanna með því að taka ellefta sætið.

Hrafnhildur um Nesty: Í fyrra var ég að kenna honum hvað ég vil gera

Hrafnhildur Lúthersdóttir vill frekar fá meiri upplýsingar en minni og er því mjög ánægð með að hafa aðgang að báðum þjálfurum sínum á leikunum í Ríó. Hér eru bæði Klaus-Jürgen Ohk sem þjálfar hana á Íslandi og Anthony Nesty sem þjálfar hana úti í Flórída.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×