Körfubolti

Howard keyrði tíu sinnum yfir á rauðu ljósi

Howard á nóg af peningum en greiðir ekki sektirnar sínar.
Howard á nóg af peningum en greiðir ekki sektirnar sínar. vísir/getty
NBA-stjarnan Dwight Howard þarf að fá far á æfingar á næstunni þar sem hann er búinn að missa ökuskírteinið.

Howard leikur með Houston í dag en þegar hann spilaði í Orlando þá safnaði hann sektum fyrir vafasamt ökulag.

Hann var tíu sinnum gripinn við að keyra yfir á rauðu ljósi, tólf sinnum greiddi hann ekki vegtoll og fjórum sinnum var hann tekinn fyrir að keyra of hratt.

Er hann flutti til Houston var hann ekkert að hafa fyrir því að greiða sektirnar í Orlando og fyrir vikið hefur hann misst ökuskírteinið.

Howard á meðal annars glæsilegan, hvítan Ferrari en hann verður að láta sér nægja að bóna hann næstu mánuði.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×