ÞRIÐJUDAGUR 21. MAÍ NÝJAST 14:30

Lifði af 300 metra fall - "Ég hélt að ég væri að fara deyja"

FRÉTTIR

Hótanapólitík af því tagi sem olli hruninu

Fréttablaðið Innlent 31. janúar 2011 18:00
Lilja Mósesdóttir.
Lilja Mósesdóttir.

„Mér finnst mjög hættulegt þegar flokksformenn beita hótunum til þess að fá þingmenn til fylgis við stefnu ríkisstjórnarinnar," segir Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna.

Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gagnrýndi órólegu deildina svonefndu í VG harkalega á flokksstjórnarfundi Samfylkingarinnar um helgina og sagði hana hafa skaðað stjórnarsamstarfið og dregið úr trúverðugleika ríkisstjórnarinnar.

Lilja segir það koma sér á óvart að forsætisráðherra skuli taka svo sterkt til orða. „Ég veit ekki betur en að við höfum legið mjög lágt undanfarið, að minnsta kosti alla síðustu viku."

Lilja segir engan ágreining hafa verið innan stjórnarflokkanna að undanförnu. Hún sér hins vegar eftir því að hafa ekki verið gagnrýnni á stjórnlagaþingsfrumvarpið á sínum tíma.

„Ég ákvað að fylgja meirihlutanum eftir í því máli og sýndi ákveðið andvaraleysi. Þegar dómurinn féll var ég pirruð út í sjálfa mig að hafa ekki tekið enn einn slaginn. En maður velur sér slagina og ég tók ekki þennan."

Lilja segir að hótun Jóhönnu dragi úr gagnrýnisröddum hjá stjórnarliðum. „Það getur verið mjög hættulegt að ganga að öllu því sem kemur inn á borð þingsins og ekki leyfa ólíkum sjónarmiðum að koma fram. Hvað á ég til dæmis að gera þegar við förum að ræða breytingar á kvótakerfinu? Á ég þá bara að fylgja Jóhönnu? Eigum við þá ekki að ræða málin svo hægt sé að koma í veg fyrir stórslys?"

Spurð hvort forsætisráðherra sé að reyna að kúga þingmenn VG til hollustu segir Lilja:

„Mér finnst Jóhanna vera svona gamaldags stjórnmálamaður sem rannsóknarnefnd Alþingis taldi að hefði átt þátt í hruninu. Hún ætlast til ákveðinnar hollustu við ríkisstjórnina sem mér finnst hættulegt. Oft er ég ekki að gagnrýna ríkisstjórnina heldur er að reyna að afstýra mistökum."
Lilja segist ekki ætla að fylgja forsætisráðherra í blindni. „Þá fyndist mér eins og þessi þátttaka mín í stjórnmálum hafi verið til einskis. Þá hefði ég bara farið þarna inn til að stunda þá pólitík sem leiddi til hrunsins."

kristjan@frettabladid.is



Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Innlent 21. maí 2013 14:27

Útkall vegna slæms mataræðis eiginmanns

Lögregla leysti ágreining hjóna á Suðurnesjunum. Meira
Innlent 21. maí 2013 13:43

Þau sátu í íslensku dómnefndinni

Sérstök dómnefnd hefur helmings vægi til móts við símakosningu í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Dómnefndin er því mikill úrslitavaldur í því hvernig úrslitin ráðast. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:55

„Er fólk ekki betur innrætt en þetta?“

Bubba Morthens blöskrar umræðuhefðin í athugasemdakerfunum. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:45

Uppgjör Eurovision

Ísland gaf Danmörku fullt hús stiga í Eurovision en fékk aðeins 1 frá þeim. Íslenska lagið fékk flest stig frá Þýskalandi, 8 talsins. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:21

Vinkona Eyglóar komst af í hamförunum í Oklahoma

Eygló Harðardóttir alþingismaður var skiptinemi í Oklahoma fyrir rúmum áratug, og þekkir vel til óvissu og hræðslu við hvirfilbylina sem fara þar í gegn ár hvert á vorin. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:15

Undirheimar nötra eftir Ystaselsárásina

Yfirlögregluþjónn segir almenning ekki þurfa að hafa áhyggjur af mögulegum eftirmálum líkamsárásar í Ystaseli. Dæmdir ofbeldismenn sem málinu tengjast ganga lausir. Fullyrt er að vinir árásarþolans ha... Meira
Innlent 21. maí 2013 10:15

Þjálfar hunda í dans, bíómyndir og húsverk

Auður Björnsdóttir hundaþjálfari hefur þjálfað hunda til að hjálpa fötluðum sem og flogaveikum. Hún hefur einnig þjálfað hund sem fer með hlutverk í íslenskri bíómynd og annan sem dansar við lög Helga... Meira
Innlent 21. maí 2013 10:15

Ómetanlegur stuðningur við börn alkóhólista

SÁÁ hefur undirritað samning við Atlantsolíu með það að markmiði að styðja við Barnahjálp SÁÁ sem stofnuð var í síðustu viku. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:11

Jóhanna sátt við Simpsons

Segir það óvænt og skemmtilegt að enda sem persóna í Simpson-þætti. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:00

Ríkið hefur framtíð Bæjarbíós í hendi sér

Ef stjórnvöld veita ekki fjármagni til Kvikmyndasafns Íslands þá mun Gaflaraleikhúsið taka við rekstri Bæjarbíós í Hafnarfirði. Beiðni Kvikmyndasafnsins um framlengingu samnings er hafnað og hverfur s... Meira
Innlent 21. maí 2013 10:00

Mok af kolmunna í vertíðarlok

Börkur NK, skip Síldarvinnslunnar á Neskaupstað, er nýkominn með fullfermi af kolmunna í heimahöfn, og markaði það lok vertíðarinnar eystra. Meira
Innlent 21. maí 2013 10:00

Helmingur smitaðra þegar látið lífið

Ný gerð skæðrar bráðalungnabólgu hefur skotið upp kollinum og hefur þegar lagt 20 manns að velli, eða helming þeirra sem hafa greinst með sjúkdóminn síðan í mars 2012. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:45

Geðgjörgæsla opnuð næstkomandi haust

Afar mikilvægt skref, segir framkvæmdastjóri geðsviðs. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:45

Agnarsmár vágestur gerir vart við sig á ný

Birkikemba gerir mjög vart við sig annað árið í röð, en um smávaxið fiðrildi er að ræða sem stórskemmir birkitré. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:45

360° bíllinn kominn á kreik

Sérútbúinn myndatökubíll frá Já mun á næstu vikum og mánuðum mynda helstu kennileiti og ferðamannastaði hér á landi, sem og fjölfarnar götur í þéttbýli. Meira
Innlent 21. maí 2013 09:12

Eftirlíkingum fargað undir eftirliti Tollgæslunnar

Stöðvuðu sendingu frá Kína sem innihélt eftirlíkingar af húsgögnum frægra hönnuða. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:46

Endurupptaka máls Montt

Montt er 86 ára og var fundinn sekur um það, 10. maí, að hafa staðið fyrir morðum sem herdeildir hans frömdu á að minnsta kosti 1,771 meðlimi Maya Ixil þjóðarinnar. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:38

Illugi og Eygló ráðherraefni

Samkvæmt óstaðfestum heimildum hafa þau Illugi Gunnarsson Sjálfstæðisflokki og Eygló Harðardóttir Framsókn verið nefnd sem hugsanleg ráðherraefni; Illugi sem menntamálaráðherra og Eygló sem utanríkisr... Meira
Innlent 21. maí 2013 07:33

Ingólfur Geir á toppinn

Fjallgöngumaðurinn Ingólfur Geir Gissurarson komst á tind Everestfjalls, hæsta fjalls í heimi, um klukkan eitt í nótt að íslenskum tíma. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:31

Lothar Schmid allur

Þýski stórmeistarinn og skákdómarinn Lothar Schmid lést um helgina, 85 ára gamall. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:29

Sextán ára og akandi

Fór of hratt og ljóslaus að auki. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:26

Fimmtíu þúsund króna sekt fyrir 120 kílómetra hraða

Umferðin til höfuðborgarsvæðisins var með meira móti í gær, eftir þessa fyrstu ferðahelgi ársins. Meira
Innlent 21. maí 2013 07:23

Skriðuhætta á Vestfjörðum

Það ræðst í dag hvort óhætt verður talið að opna á ný þjóðveginn um Kjálkafjörð á sunnanverðum Vestfjörðum, eftir að honum var lokað á miðnætti. Meira
Innlent 20. maí 2013 20:51

„Ég er með frábæra hugmynd!“ - Hómer talar íslensku

Það er ekki lítið sem Hómer Simpson leggur á sig í Íslandsþætti Simpson-fjölskyldunnar sem sýndur var í kvöld. Meira
Innlent 20. maí 2013 19:46

Þurfa að leggja harðar að sér en karlarnir

Konur þurfa að leggja miklu harðar að sér til að njóta virðingar og komast í stjórnunarstöður innan lögreglunnar, segir lögreglukona á höfuðborgarsvæðinu. 35 af 36 aðalvarðstjórum landsins eru karlmen... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Fréttir / Innlent / Hótanapólitík af því tagi sem olli hruninu
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000