Íslenski boltinn

Höskuldur: Þetta var erfitt því hugurinn var kominn út

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Eins og kom fram í morgun spáir Íþróttadeild 365 Breiðabliki fjórða sæti Pepsi-deildarinnar í sumar. Það er tveimur sætum neðar en liðið endaði í fyrra, en Blikar áttu flotta leiktíð undir stjórn Arnars Grétarssonar og nældu í silfrið.

„Þetta kemur kannski ekki beint á óvart miðað við gengið í vetur sem hefur ekki náð sömu hæðum og í fyrra. Við tökum þessu bara sem góðu peppi en við viljum fara ofar þetta,“ segir Höskuldur Gunnlaugsson, sóknarmaður Breiðabliks, í viðtali við Vísi um spána.

„Ef ég tala af hreinskilni hef ég mjög mikla trú á liðinu. Í fyrra byrjuðum við á þremur jafntefli og þá var vægast sagt komin krísa því maður hélt að þetta jafnteflisdæmi væri að halda áfram.“

„En svo unnum við leik og þá tókum við sex í röð eða eitthvað. Þá small þetta allt saman. Við byrjuðum ekkert frábærlega í fyrra en mér finnst vera kominn spenna fyrir að komast út á gras og byrja mótið þannig ég er bjartsýnn og spenntur fyrir sumrinu,“ segir Höskuldur.

Smellur í sumar

Blikar hafa átt í nokkrum vandræðum með að skora mörk á undirbúningstímabilinu. Hvað er í gangi þar?

„Það er erfitt að segja. Bæði hefur þetta verið óheppni en svo kannski vantar aðeins gredduna til að drepa leiki. Um leið og við náum einum góðum leik þá opnast flóðgáttir og í hausnum verður þetta léttara,“ segir Höskuldur.

„Seinni hluta sumars í fyrra vorum við að vinna leiki 1-0 en núna höfum við ekki alveg verið að halda jafnmikið hreinu en ég hef trú á því að þetta muni smella í sumar.“

Hugurinn kominn út

Höskuldur átti frábært tímabil í fyrra en þessi 21 árs gamli sóknarmaður skoraði sex mörk og varð ein af stjörnum deildarinnar. Sænska liðið Hammarby sóttist eftir kröftum hans en allt kom fyrir ekki.

„Þetta var erfitt þegar allt var í gangi. Hugurinn var svolítið kominn út. Núna er ég einbeittur og hlakka til að byrja í Pepsi-deildinni. Mig langar að gera vel fyrir mitt lið og mig sjálfan og hafa gaman í sumar,“ segir Höskuldur.

„Þetta var mjög lærdómsríkt og ég held ég hafi lært mikið af þessu andlega. Ég fann bara þegar allt var í gangi þá gekk mér ekki jafnvel á vellinum. En þegar maður fer að einbeita sér að réttum hlutum á vellinum þá er maður hamingjusamari.“

„Það er alveg klárlega minn draumur að komast út en ég var kannski svolítið óþolinmóður. Eins og staðan er núna er ég bara spenntur fyrir því að geta byrjað að spila á grasi og byrja alvöru mót,“ segir Höskuldur Gunnlaugsson.

Allt viðtalið má sjá í spilaranum hér að ofan.

Viðtal: Tómas Þór Þórðarson

Upptaka og eftirvinnsla: Guðni Ingi Johnsen, Garðar Örn Arnarson


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×