Fátt fer meira í taugarnar á mér en hneykslunarárátta. Þess vegna hneykslast ég mjög gjarnan á því hvað mér finnst fólk hneykslunargjarnt. Þess á milli hneykslast ég á því að fólk skuli ekki hneykslast á því sem mér finnst sannarlega hneykslunarvert. Eftir að ég tók að temja mér þann leiða ósið að dvelja langdvölum á Facebook hefur þessi innri þversögn orðið mér jafnt og þétt ljósari og um leið óskiljanlegri. Það er nefnilega mikið hneykslast á Facebook. Og þótt mér leiðist þessi sífellda hneykslun þá er eins og ég límist við hana og í stað þess að slökkva á tölvunni og fara að gera eitthvað viskulegt er ég, áður en ég veit af, búinn að kynna mér hverja hneykslunarhelluna á fætur annarri og verð jafnan sárhneykslaður á því hvað þær eru í raun lítið hneykslunarefni þegar upp er staðið – svona í hinu stóra samhengi.
Ég vil ekki gera lítið úr öllum þeim óheiðarleika, sora og óeðli sem veður uppi, hvað þá hinu ógeðfellda hæfileikaleysi íslensks framáfólks til að sjá sök hjá sjálfu sér né einstakri lagni þess við að benda hvert á annað til að finna orsakir alls sem afvega hefur farið. En það hvarflar stundum að mér að þetta þjóni engum tilgangi. Undanfarið hef ég nefnilega hvað eftir annað séð fólk rjúka upp í hneykslun á hinu og þessu (Snorra í Betel, öskudagsbúningum, Jóni Baldvin, passíusálmunum, Geir Jóni o.s.frv.) með þeim afleiðingum að aðrir rjúka upp í hneykslun á því að hneykslast sé á þessu og þá er auðvitað hneykslast á því að þeim skuli finnast slík hneykslun eitthvað hneykslanleg. Hverju skilar þetta?
Íslendingar eru að ýmsu leyti eins og börn sem búa við heimilisofbeldi. Við vorum blekkt og svívirt af þeim sem áttu að gæta hagsmuna okkar og við treystum til þess. Ekkert hefur verið gert til að endurheimta það traust eða gefa þjóðinni inneign fyrir fyrirgefningu sem er forsenda sáttar og heilbrigðra samskipta. Börn sem búa við heimilisofbeldi eru sjaldan til vandræða inni á heimilinu. Þar hafa þau gefið alla von um réttlæti upp á bátinn. Vanlíðan þeirra brýst út í skólanum og á leikvellinum. Höfum við með öllu gefist upp á stóru réttlætismálunum? Er virkilega svo komið að eina aðferð okkar til að fá útrás fyrir gremjuna og vanlíðanina er að froðufella af bræði og hneykslan á netinu yfir hvaða tittlingaskít sem við getum verið ósammála um?
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Í sumar fagna ég því að heil átta ár eru síðan ég hóf minn feril sem knattspyrnuáhangandi. Ég er ein af þessum svokölluðu "antisportistum“ sem æfði hestaíþróttir og samkvæmisdans á yngri árum á ...
Meira
Ég veit ekki af hverju ég tók skýra afstöðu í skilnaði sem kom mér ekkert við og ég vissi ekkert um. En ég skyldi halda með Jennifer hvað sem tautaði og raulaði. Þessi Angelina virtist eitthvað tvöföl...
Meira
Ég ætla að fjalla um fegurð í þessum stutta pistli. Þar sem umfjöllunarefnið er víðfeðmt mun ég takmarka mig við fegurð fótboltamarka. Ég er ekki að tala um mörkin sjálf heldur framkvæmdina að skora m...
Meira
Fyrir fáeinum dögum hlustaði ég á sögu sem gerði mig bæði reiðan og dapran í senn. Hér á ég við umfjöllun Kastljóssins um hugmyndir forsvarsmanna Heilbrigðisstofnunarinnar á Ísafirði um lokun hjúkruna...
Meira
Góðan dag. Er þessi trefill rétt merktur? Getur verið að hann kosti 4.000 krónur? - No. It is 400 krónur. - Nú jæja, þá ætla ég að fá hann. - Yes. 400 krónur, please. - Gjörðu svo vel. - Thank you. Ha...
Meira
Tjáningarfrelsi er töff og ég vil hafa rétt á því að segja hvað sem mér sýnist hvenær sem mér sýnist en ég er líka meðvituð um að það sem ég segi hefur áhrif og því fylgir ábyrgð. Á sama tíma og ég he...
Meira
Þegar ég leit í spegil í morgunskímunni um daginn sýndist mér ég sjá eðlu. Eitthvert skriðdýrslegt blik virtist vera í augum mér og svo virtist sem húðin hefði fengið á sig grænleitan blæ.
Meira
Ég hafði gaman af dönsku í grunnskóla. Mál og menning þjóðarinnar lagðist vel í mig, mamma hlýddi mér yfir og yfirleitt fékk ég hæstu einkunnirnar í dönsku.
Meira
Vefsíðan Careercast hefur undanfarin ár lagst í ítarlega rannsókn á því hver séu bestu og verstu störf í hinum vestræna heimi. Á listanum eru 200 starfsstéttir og niðurstaðan byggir á fimm mælikvörðum...
Meira
Í nýafstöðnum kosningum klæddu gamlar konur sig upp, einhverjir flögguðu, allavega einn fékk ís og enginn gerði þarfir sínar í kjörkassa. ÖSE-menn voru sáttir, herbergi var innsiglað og svo fundið út ...
Meira
Viðbrögðin við úrslitum kosninganna á laugardag voru flest fyrirsjáanleg. Stuðningsmenn Bjartrar framtíðar og Pírata glöddust en Samfylkingarfólk og stuðningsmenn minnstu flokkanna grétu. Fögnuður Fra...
Meira
Þegar ég var tiltölulega nýskriðin á þrítugsaldurinn nam ég markaðsfræði við skóla einn í Danmörku. Stuttu eftir að önnin hófst kom í ljós að áhugi minn á mörkuðum, hagkerfum og tölfræði var takmarkað...
Meira
Þegar þessi pistill er skrifaður eiga kosningar til Alþingis 2013 eftir að fara fram. Þegar þú hins vegar lest þessi orð eru þær afstaðnar og ný ríkistjórn yfirvofandi.
Meira
Vorið 2007 tók ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks og Samfylkingar við völdum. Ég man þá ljúfu tilfinningu sem greip mig við að sjá fréttaljósmyndir af formönnum flokkanna, þeim Geir Haarde og Ingibjörgu Só...
Meira
Í íslenskri menningu er hrafninn heldur illa liðinn fugl. Hann er hrææta, kroppar augun úr hrútshausum, gjarnan bendlaður við sjálfan djöfulinn, feigðarboði og sálnasækir. Þetta rímar ekki við mín ein...
Meira
Ég kann ekki að meta sjóræningja. Í mér býr djúpstæður frumótti við sjóræningja. Mér svelgdist á kaffinu mínu þegar ég las að í framboði væri flokkur sem kennir sig við sjóræningja. Hvað næst? Hákarla...
Meira
Ég var einmitt að ljúka við æfingaferli sem leikstjóri hjá Þjóðleikhúsinu og núna, eftir velheppnaða frumsýningu, er ég byrjuð á íslenskunámskeiði hjá Mími símenntun. Mér finnst íslenskunám mitt hafa ...
Meira
Um daginn áttum við vinur minn spjall sem hefur setið í mér. Ég talaði um nauðsyn þess að lækka skatta til að auka hagvöxt og svo ætlaði ég eflaust að segja eitthvað annað mikilvægt þar að lútandi þeg...
Meira
Það eru 1.512 Íslendingar í framboði til Alþingis, fleiri en nokkru sinni. Ef öllu þessu fólki yrði komið fyrir á fótboltavelli væru 69 fótboltalið á hvorum vallarhelmingi. Þetta er rosalega margt fól...
Meira
Við hvað kenna stjórnmálaflokkar sig? Til dæmis samstöðu, velferð, sjálfbærni, framfarir, réttlæti, sanngirni og lýðræði. Ég ætla ekki að kvarta yfir þessu. Verra væri ef val kjósenda stæði á milli fl...
Meira