Viðskipti erlent

Hlutabréf í Netflix hrynja

Sæunn Gísladóttir skrifar
Hlutabréf í Netflix hafa hrunið eftir að tilkynnt var um að alþjóðlegum notendum myndi einungis fjölga um tvær milljónir á núverandi ársfjórðungi.
Hlutabréf í Netflix hafa hrunið eftir að tilkynnt var um að alþjóðlegum notendum myndi einungis fjölga um tvær milljónir á núverandi ársfjórðungi. Vísir/Getty
Hlutabréf í streymiþjónustunni Netflix hafa lækkað um 10,9 prósent það sem af er degi. Hlutabréfin lækkuðu um yfir níu prósent í viðskiptum eftir lokun markaða á Wall Street í gær. Ástæða þess er talin vera að ekki hefur tekist að fjölga notendum eins og spáð var um.

Netflix var með 81,5 milljón notenda á fyrsta ársfjórðungi 2016. Í janúar tilkynnti fyrirtækið um að boðið yrði upp á þjónustuna í 130 nýjum löndum. Á fyrsta ársfjórðungi fjölgaði notendum utan Bandaríkjanna um 4,5 milljónir og námu 34,5 milljónum.

Fjárfestar óttast þó að alþjóðlegum notendum sé ekki að fjölga nógu hratt. Netflix spáir að þeim muni einungis fjölga um tvær milljónir á núverandi ársfjórðungi, sem er fimmtíu prósent lægra en spár greiningaraðila. Ef alþjóðlegum notendum fjölgar einungis um tvær milljónir er það minnsta ársfjórðungsaukning hlutfallslega frá upphafi. 

Í gær tilkynnti Amazon að streymiþjónustan þeirra yrði aðgengileg öllum, en ekki bara þeim með Prime aðgang. Þetta mun veita Netflix aukna samkeppni. Amazon þjónustan gerir notendum meðal annars kleift að horfa á þætti og kvikmyndir án nets sem Netflix býður ekki. Netflix hefur einnig hækkað verðskrá sína til að mæta auknum kostnaði við framleiðslu og kaup á nýju efni.



 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×