Innlent

Hjúkrunarfræðingur ákærður - Ekkja mannsins vildi ekki kæra

Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar
Eiginmaður Ingveldar, Guðmundur Már Bjarnason, lést þriðja október ber 2012. Hann var á batavegi eftir hjartaaðgerð þegar áfallið dundi yfir.
Eiginmaður Ingveldar, Guðmundur Már Bjarnason, lést þriðja október ber 2012. Hann var á batavegi eftir hjartaaðgerð þegar áfallið dundi yfir.
Ingveldur Sigurðardóttir, eiginkona manns sem lést í október 2012, sagði í samtali við Stöð 2 síðasta haust að ekki væri rétt að kæra hjúkrunarfræðinginn sem nú hefur fengið ákæru fyrir manndráp af gáleysi.

„Við erum öll mannleg og getum gert mistök og vonandi lærum við bara af þeim. Ég vil ekki að það verði farið illa með þessa blessuðu konu, það er ekki mitt mottó,“ sagði Ingveldur.

Ríkissaksóknari hefur lagt fram ákæru á hendur spítalanum og hjúkrunarfræðingnum. Hjúkrunarfræðingurinn starfaði á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún er nú í starfsleyfi.

Í tilkynningu frá Landspítalanum segir að hinum ákærða hefur þegar verið úthlutað lögfræðingi ásamt því að Landspítalinn mun hafa sinn eigin lögmann. Landspítalinn standi þó með hinum ákærða.

Eiginmaður Ingveldar, Guðmundur Már Bjarnason, lést þriðja október ber 2012. Hann var á batavegi eftir hjartaaðgerð þegar áfallið dundi yfir.

Guðmundur átti þrjú börn og þau eru á sama máli og Ingveldur. „Enda fáum við hann ekki aftur, þótt blessuð konan verði ákærð. Það er heldur ekki á okkar valdi því það var spítalinn sem kærði þetta í upphafi. En ég vona að þeir hlúi að þessari konu og hjálpi henni yfir þetta því það er ekkert gaman að vera með svona á bakinu.“

Ingveldur taldi að rétt hafi verið brugðist við eftir að mistökin komu upp. Svo hef ég verið í sambandi við djáknann þarna á spítalanum og hún hefur hjálpað mér heilmikið. Yndisleg kona. Ég er þakklát fyrir allt sem ég hef fengið og það eina sem ég er að gera er að halda lífinu áfram. Og reyna að lifa því skemmtilega,“ sagði Ingveldur.

Þetta er í fyrsta skipti sem Landspítalinn og starfsmaður hans eru ákærðir fyrir atvik af þessu tagi.

Heimildir Vísis herma að þetta sé mikið áfall fyrir starfsfólk spítalans. Í tilkynningu Landspítalans segir einnig að ákæran muni skapa mikla óvissu í störfum heilbrigðisstarfsmanna í framtíðinni.


Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×