Hjálpa fólki sem á erfitt andlega 28. október 2008 16:10
Stofnaður hefur verið nýr sjóður til styrktar þeim sem eiga erfitt andlega. Sjóðurinn nefnist „ÞÚ GETUR!" og er nýtt afl í baráttunni fyrir forvörnum og geðheilsueflingu. Samkvæmt fréttatilkynningu er markmið hans að styrkja þá til náms sem átt hafa við geðræn veikindi að stríða, að efla nýsköpun og bætta geðheilbrigðisþjónustu, að efla fræðslu og forvarnir og að standa að aðgerðum sem draga úr fordómum í samfélaginu. Vísir spurði einn af stofnendum sjóðsins Ólaf Þór Ævarsson geðlæknir Ph. D. um nýja sjóðinn og tilgang hans: „Sjóðurinn er forvarna- og fræðslusjóður sem hefur þrjú markmið. Í fyrsta lagi til að styðja þá til náms sem eru að vinna sig úr allri vanlíðan. Þá erum við að hugsa um að fólkið geti keypt bækur, greitt skólagjöld eða keypt tölvur. Ég þekki þetta vel úr starfinu og veit að það er mikilvægt. Í öðru lagi að vinna markvisst gegn fordómum og í þriðja lagi að styðja fagfólk í geðheilbrigðisfræðum sem hefur áhuga á að byggja upp nýjungar í geðheilbrigðisþjónustu og eru frumkvöðlar með nýjar hugmyndir," segir Ólafur Ævar. Í fréttatilkynningu sjóðsins er minnst á að einhverjir kynnu að segja að söfnun af þessu tagi sé ekki vel tímasett og að fjáröflun kunni að reynast erfið má allt eins segja að á erfiðleikatímum sem nú eru í þjóðfélaginu sé afar mikilvægt að vekja athygli á málstað þeirra sem minna mega sín. Fátt gæti verið mikilvægara á þrengingartímum en einmitt að efla einstaklinga til náms. Kynning og fjáröflun hefst með tónleikum í Háskólabíó miðvikudagskvöldið 12. nóvember þar sem margir af þekktustu tónlistarmönnum þjóðarinnar hafa þegar ákveðið að leggja málefninu lið og taka þar þátt og gefa vinnu sína. Nánari upplýsingar má finna á vefnum www.stress.is
Mest lesið Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Hótaði að beita skotvopni Innlent Fleiri fréttir Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Ari þiggur stöðu stjórnarformanns „Staðreynd að matarkarfan mun lækka í verði“ NASA mun fylgjast með íslenska himinhvolfinu Sjá meira