Hitti Dalai Lama fyrir nær hálfri öld 2. júní 2009 04:00 Rifjar upp fundinn í Efra Dharamsala Sigurður A. Magnússon er hér með bók sína Við elda Indlands á borðinu en þar segir hann frá fundi sínum með Dalai Lama árið 1960.fréttablaðið/anton
Sigurður A. Magnússon rithöfundur vonast til þess að endurfundir verði með honum og Dalai Lama en þeir hittust árið 1960 í Efra Dharamsala á Indlandi. Þá var Dalai Lama 25 ára og hafði verið eitt ár í útlegðinni sem hófst þegar Kínverjar brutu á bak aftur uppreisn Tíbeta. Sú uppreisn hafði staðið yfir í níu ár, eða frá því að Kínverjar hernámu landið árið 1950. „Það var svo sem enginn hægðarleikur að ná á fund hans,“ rifjar Sigurður upp. „Það var ekki fyrr en ég komst í kynni við mann að nafni Lobsang Lhalungpa sem jafnan var kallaður „sonur véfréttarinnar í Tíbet“ að eitthvað fór að þokast. Hann sagði mér að Dalai Lama væri þarna uppi í fjöllunum og hann gæti komið mér í samband við hann.“ Eftir mikið ferðalag bar fundum þeirra saman. „Það kom mér satt að segja nokkuð á óvart hvað hann var jákvæður, ljúfur og skemmtilegur. Við megum ekki gleyma því að þjóð hans hafði þurft að þola skelfilegar hörmungar svo maður hefði jafnvel átt von á því að hitta fyrir beiskan mann. En því var ekki fyrir að fara. Hann var einnig alveg sérlega alþýðlegur og laus við allt pjatt. Mér er minnisstætt þegar ég var að fara út, þá fór ég aftur á bak enda ekki talið við hæfi að menn snúi nokkurn tímann baki við jafn helgum mönnum. Þegar hann sá þetta skellti hann upp úr með sínum sérstaka hætti og sagði mér að vera ekki með þennan hégóma. Reyndar talaði hann ekki ensku á þessum árum svo allt var túlkað sem okkur fór á milli og svo var þarna ritari sem skrásetti allt sem fram fór. Reyndar var túlkurinn ekkert að hafa of mikið fyrir hlutunum. Það sást best þegar Dalai Lama hafði lokið við langar setningar sem urðu svo að nokkrum orðum í meðförum túlksins.“ Dalai Lama bað Sigurð um að koma boðum til Íslendinga um hvort þeir gætu tekið við munaðarlausum börnum frá Tíbet sem væru í mikilli neyð. Sigurður kom þessu á framfæri í Morgunblaðinu, þar sem hann skrifaði viðtal sitt við leiðtogann. Enginn viðbrögð bárust við þeirri beiðni. En ætlar Sigurður að fara á fyrirlestur hans hér á landi? „Það væri gaman en ég held að allt sé uppselt, ég hef sofið á verðinum. Það væri gaman að sjá hann eftir allan þennan tíma. Ég geri mér þó ekki grillur um að hann muni eftir mér.“ jse@frettabladid.is
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Innlent Íranir draga orð Trump til baka og vara fólk við að taka hann trúanlegan Erlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Innlent Eldur í Árbænum Innlent 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Innlent Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Erlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Sjö prósent 9 og 10 ára drengja á bið eftir greiningu Malbika á Reykjanesbraut í kvöld 107 fæddu heima og sjö án aðkomu heilbrigðisstarfsfólks Ætlar ekki að sitja undir ásökunum um barnaníð Eldar í grillum og kveikt í ruslagámi Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofning innan flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Sjá meira