Innlent

Hinn skipverjinn yfirheyrður í dag

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Grímur Grímsson, yfirmaður rannsóknarinnar. Fréttablaðið/Anton Brink
Grímur Grímsson, yfirmaður rannsóknarinnar. Fréttablaðið/Anton Brink
Annar maðurinn sem grunaður er um að bera ábyrgð á dauða Birnu Brjánsdóttur verður yfirheyrður í dag. Hinn maðurinn var yfirheyrður í gær og stóðu yfirheyrslur fram eftir degi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins var Thomas Möller yfirheyrður í gær og verður þá Nikolaj Olsen yfirheyrður í dag.

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni, kveðst eiga von á því að yfirheyrslur í dag fari fram á Litla-Hrauni, líkt og í gær, en sakborningarnir sitja þar í einangrun eftir að hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald til 2. febrúar.

Að sögn Gríms liggur ekki fyrir játning í málinu. Hann vill að öðru leyti tjá sig lítið um rannsóknina en segir þó að lögreglan sé litlu nær um ferðir rauða Kia Rio-bílsins laugardagsmorguninn 14. janúar.

„Það hefur ekki bæst neitt í það en við erum bara að vinna úr gögnum sem við höfum aflað síðustu daga og eins og fram hefur komið er þetta gríðarlegt magn af myndefni,“ segir Grímur.

Aðspurður hvort að einhverjar upplýsingar hafi fengist um ferðir rauða bílsins í yfirheyrslum í gær segir Grímur svo ekki vera.

Búið er að staðfesta það að líkið sem fannst við Selvogsvita á sunnudag sé af Birnu. Varðandi það hvar því var komið fyrir og hvort að lögreglan sé einhverju nær um það segir Grímur:

„Við vinnum eftir ákveðinni hugmynd í því sambandi án þess að ég geti farið nánar út í það.“

Þá vill Grímur ekki staðfesta að skilríki Birnu hafi fundist um borð í Polar Nanoq og segir að lögreglan vilji alls ekki gefa upp hvað hafi fundist í grænlenska togaranum. Ekki sé gott að sönnunargögn séu til umræðu.


Tengdar fréttir

Gætu borið mismikla ábyrgð í málinu

Mennirnir tveir, sem grunaðir eru um að hafa banað Birnu Brjánsdóttur, hafa setið nánast afskiptalausir í einangrun í þrjá daga. Þeir verða yfirheyrðir í dag. Lögregla rannsakar hlut hvors þeirra fyrir sig í málinu.

Dánarorsök Birnu ekki gefin upp

Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn sem stýrir rannsókninni á dauða Birnu Brjánsdóttur, segir að lögreglan hyggist ekki tjá sig um bráðabirgðaniðurstöðu úr krufningu á líki hennar sem gerð var í gærkvöldi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×