Hinar orkulindirnar

Fréttablaðið Fastir pennar 07. febrúar 2012 06:00
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen
Ólafur Þ. Stephensen skrifar:
Þriðjungur þingheims, þingmenn úr öllum flokkum undir forystu Skúla Helgasonar, hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að iðnaðarráðherra verði falið að hefja vinnu við mat á umfangi og nýtingarmöguleikum sjávarorku við strendur Íslands. Þingmennirnir vilja fela ráðherra að stuðla að framgangi tækniþróunar á þessu sviði, byggja upp gagnagrunn og kanna með hvaða hætti Ísland geti tekið þátt í alþjóðlegu samstarfi um nýtingu sjávarorku.

Ekki þarf að fjölyrða um að Ísland er ríkt af endurnýjanlegri, vistvænni orku. Þar höfum við til þessa einblínt á orku fallvatnanna og jarðhitann. Eins og bent er á í greinargerð með þingsályktunartillögunni er hins vegar hugsanlegt að enn meiri orka búi í sjávarföllum við landið en samanlagt í jarðhita- og vatnsauðlindum. Hún hefur ekki verið talin virkjanleg með hagkvæmum hætti, ekki fremur en vindorkan sem Ísland á líka nóg af. Fyrir vikið hefur nýting þessara orkulinda ekki verið á dagskrá hér að ráði og hvorki Orkustofnun né orkufyrirtækin hafa fjárfest í rannsóknum og skrásetningu á orkukostum.

Upp á síðkastið hefur Landsvirkjun þó kannað möguleika á að setja upp vindmyllur til orkuvinnslu og ýmsir einkaaðilar byrjað tilraunir með nýtingu vindorku. Þá er þróun sjávarorkutækni hafin hér á landi, meðal annars á vegum fyrirtækisins Valorku ehf. sem Valdimar Össurarson rekur. Hann sagði í samtali við Fréttablaðið í gær að fyrirtækið stefndi að því að virkja hæga strauma í röstum og við annes, en til vandræða væri hversu litlar rannsóknir væru til á sjávarföllum við landið.

Við þurfum að fara að horfa til fleiri orkulinda en jarðhita og fallvatna, ekki sízt í ljósi þess að sjónarmið umhverfisverndar, útivistar og ferðamennsku takmarka í meira mæli en einu sinni var talið hversu mikið af orkunni er hægt að nýta. Eins og segir í greinargerð tillögunnar er sérhver nýr virkjanakostur nú umdeildari en áður og vatns- og varmaorkan engan veginn óþrjótandi.

Mörg nágrannaríkin, til dæmis Írland, Bretland og Danmörk, eru komin á fleygiferð í rannsóknum á sjávar- og vindorku. Við þurfum að fylgjast með þeim rannsóknum og efna til samstarfs við vísindamenn og orkufyrirtæki í nágrannalöndunum.

Um virkjun vindorku og sjávarorku gildir að mörgu leyti það sama og um virkjun fallvatna og jarðhita; að sjónarmið um umhverfisvernd og aðra hagkvæma nýtingu viðkomandi svæða geta takmarkað virkjunarmöguleikana. Það fer þó að hluta til eftir þeirri tækni sem er notuð. Sjávarfallavirkjanir með stíflum, eins og sums staðar þekkjast, hafa þannig gífurleg umhverfisáhrif en hverflar sem liggja á hafsbotninum eða í yfirborðinu miklu minni.

Til lengri tíma litið getur þurft að raða þeim stöðum, þar sem til greina kemur að virkja vind og sjávarföll, í forgangsröð eins og nú er leitazt við að gera með Rammaáætlun um verndun og nýtingu vatnsafls og jarðvarma. Forsenda þess að það sé hægt, og nýting þessara orkulinda sé raunhæf, eru rannsóknir og kortlagning möguleikanna. Þess vegna er þingsályktunartillagan þörf og ástæða til að hefja þá vinnu sem þar er lagt upp með.

Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.

Fleiri fréttir - Fastir pennar

Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Raunhæfa planið

Þegar gjaldeyrishöft voru sett á í kjölfar hrunsins töldu flestir þau tímabundna ráðstöfun...  

Meira
Fastir pennar 25. maí. 2012 06:00

Umsókn um málfrelsi

Fyrir seinustu alþingiskosningar bauð RÚV framboðunum að fá ókeypis kynningartíma í sjónva...  

Meira
Fastir pennar 24. maí. 2012 06:00

Hin "sterka vísindahyggja“

Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra skrifaði athyglisverða grein hér í blaðið í síðust...  

Meira
Fastir pennar 23. maí. 2012 06:00

Kostur á kjarabót

Undanfarin ár hafa Íslendingar sem hyggja á fasteignakaup getað farið inn á vefsíður Íbúða...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Atkvæðaveiðigjald

Ríkisstjórnin kynnti í síðustu viku með talsverðum lúðrablæstri svokallaða fjárfestingaáæt...  

Meira
Fastir pennar 22. maí. 2012 06:00

Velferðarráðherra og sérgreinalæknar?

Í umræðunni undanfarið hefur verið tíðrætt um gjöld vegna komu til sérfræðilækna og svokal...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 20:00

Er meyjarhaftið mýta?

Sæl, Sigga Dögg. Ég las greinina þína um mýtuna um þröngu píkuna og var mjög hrifin. Mig l...  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Hinn ómissandi óþarfi

Listahátíðin í Reykjavík var alltaf stórviðburður í lífi föður míns....  

Meira
Fastir pennar 21. maí. 2012 06:00

Langtímaatvinnuleysi gefinn gaumur

Eftir langt skeið þar sem atvinnuleysi var nánast óþekkt á Íslandi skall það á af þunga ve...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Goðsögnum hnekkt

Háskóli Íslands hefur kannað hvernig einkunnir nemenda skiptast eftir þeim framhaldsskólum...  

Meira
Fastir pennar 19. maí. 2012 06:00

Uppvakningur tekinn í fóstur

Sagt var að siðfræði margra þeirra sem áttu og stjórnuðu gömlu bönkunum fyrir hrun hefði r...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 11:03

Til varnar Suðurnesjum

Pabbi vann tvo vetur í Grindavík eftir að hann kláraði kennaranám, frá 1972 til 1974. Pabb...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 08:00

Lög lygum líkust

Í frumvarpi að lögum um fjölmiðla sem nú liggur fyrir þinginu er lagt til að útlendingar u...  

Meira
Fastir pennar 18. maí. 2012 06:00

Ríkisbónus

Í desember 2009 var samið um uppgjör milli gamla og nýja Landsbankans. Í því fólst meðal a...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Óttinn við upplýsingar

Þórunn Sveinbjarnardóttir, fyrrverandi þingmaður Samfylkingarinnar, skrifaði grein hér í b...  

Meira
Fastir pennar 17. maí. 2012 06:00

Útlendingarnir ógurlegu

Allir hafa lent í einhverjum vandræðum með nágranna sína. Lengi var saga hvers lands líka ...  

Meira
Fastir pennar 16. maí. 2012 06:00

Brjótið lög!

Íslensk stjórnvöld hafa um langt skeið sett mikinn þrýsting á lífeyrissjóði landsins um að...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 08:00

Tímamót í mannréttindabaráttu

Það eru merkileg tímamót í réttindabaráttu samkynhneigðra þegar valdamesti maður heims, Ba...  

Meira
Fastir pennar 15. maí. 2012 06:00

Dómur Landsdóms - fyrri hluti

Hinn 23. apríl sl. kvað Landsdómur upp dóm í máli fyrrverandi forsætisráðherra. Hann marka...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Það gefur á bátinn …

Það eru ekki margar stéttir sem njóta almennrar virðingar í samfélaginu....  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 09:14

Skýrar línur

Ólafur Ragnar Grímsson forsetaframbjóðandi birtist landsmönnum í gamalkunnugum, pólitískum...  

Meira
Fastir pennar 14. maí. 2012 03:13

Heimilisreksturinn

Ég og konan mín keyptum okkar fyrstu íbúð fyrr á þessu ári. Samhliða því fórum við yfir re...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Pólitík eða gæði

Vísindarannsóknir á Íslandi eru fjársveltar. Þar að auki er alltof stórum hluta þeirra tak...  

Meira
Fastir pennar 12. maí. 2012 06:00

Málþófið

Í tímaþröng eru mál þæfð í öllum þjóðþingum. Tímaþröng er klípa sem ríkisstjórnir koma sér...  

Meira

Mest lesið: Umræðan

Nýjast á Vísi

Fréttablaðið

  • Forsíða Fréttablaðsins
  • Lifid
  • Allt

Stöð2

  • Ísland í dag
  • Kvöldfréttir
  • Veðurfréttir
Þú ert hér: Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hinar orkulindirnar