Tónlist

Himbrimi með lifandi flutning í hljóðveri

Gunnar Leó Pálsson skrifar
Hljómsveitin Himbrimi fór á dögunum í stúdíó Aldingarðinn og tók upp „live“ myndband og hljóð við nokkur lög en hér að ofan er fyrsta lagið sem ber nafnið Highway.

Sveitin hefur verið að gera það gott á X-Dominos listanum undanfarna mánuði, fyrst með laginu Highway og nú síðast með laginu Tearing.

Himbrimi vinnur nú að plötu og að nýju efni en hljómsveitin var tilnefnd sem nýliði ársins og Margrét Rúnarsdóttir söngkona sveitarinnar, sem söngkona ársins á hlustendaverðlaunum í febrúar. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×