Fótbolti

Higuain og Pjanic sáu um Sassuolo

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Higuain er með þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum sínum.
Higuain er með þrjú mörk í fyrstu þremur leikjum sínum. Vísir/getty
Gonzalo Higuain sem Juventus keypti dýrum dómi frá Napoli í sumar heldur áfram að skora í treyju ítölsku meistaranna en hann skoraði tvö mörk í 3-1 sigri á Sassuolo í dag.

Ítölsku meistararnir gerðu út um leikinn snemma en Higuain kom Juventus yfir á 5. mínútu eftir undirbúning frá Pablo Dybala.

Higuain var aftur á ferðinni fimm mínútum síðar eftir sendingu frá Sami Khedira og tuttugu mínútum síðar gerði Miralem Pjanic út um leikinn.

Bosníski miðjumaðurinn skoraði þá með skoti af stuttu færi en þetta var fyrsti leikur hans í Juventus-treyjunni eftir félagsskipti frá Roma í sumar.

Luca Antei minnkaði muninn fyrir Sassuolo en sigurinn var aldrei í hættu og fögnuðu Juventus-menn því þriðja sigrinum í röð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×