Hermenn stöðvuðu tryllta syrgjendur í Norður-kóreu Jónas Margeir Ingólfsson skrifar 28. desember 2011 20:00
Tugþúsundir komu saman á götum Pyongyang í morgun til að fylgjast með líkfylgd Kims Jong-Ils en hún markaði upphaf tveggja daga útfarar leiðtogans látna. Kim Jong Il lést sautjánda desember en útför hans hófst í dag. Norður-Kóreska ríkissjónvarpið sýndi beint frá líkfylgdinni en þar mátti sjá röð bíla aka hægt um torg og aðalgötur Pyongyang. Við hlið líkkistunnar gekk Kim Jong-un sonur Kim Jongs-Ils dapur á svip, en hann mun taka við völdum af föður sínum. Fyrir aftan hann gekk frændi hans, Chang-Song Taek en hann er talinn vera lykilmaður í valdaskiptunum og einn nánasti ráðgjafi hins nýja leiðtoga. Yfirmenn hersins gengu jafnframt með þeim, en fréttaskýrendur telja það vera lið í valdaskiptunum, Kim Jong-Un njóti stuðnings þeirra. Tugþúsundir flykktust út á götur og torg til að fylgjast með líkfylgdinni en fólk virtist almennt miður sín af sorg. Hermenn stóðu uppáklæddir í þúsundatali um alla borg og margir hneigðu sig, beygðir af harmi, þegar líkfylgdin ók hjá. Fréttaveita AP náði jafnframt myndum þar sem hópur fólks verður svo tryllt af sorg að það hleypur fram á götuna í átt að líkkistunni en hermönnum tókst að stöðva það. Enn ríkir mikil leynd yfir því hvernig útförinni verður háttað, en talið er að leiðtoginn látni verði lagður til hinstu hvílu einhverntímann á morgun.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Fleiri fréttir Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Vilja lækka sakhæfisaldur um eitt ár í stað tveggja Aflýsir kröftugu árásunum Bretar samþykkja Wegovy pilluna fyrstir í Evrópu Rýmdu hluta Pentagon vegna „loftgæðafráviks“ Saka Ísraela um þjóðernishreinsun á Vesturbakkanum Gera úkraínsk ungmenni að launmorðingjum Boðar harðar árásir og hernám Kharg-eyju Varnarmálaráðherra Breta segir af sér Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins Rússnesk gervitungl trufla GPS-merki í Evrópu Áframhald á árásum og Íranir segja sundið lokað allri umferð Óútskýrðir rauðir blettir á myndum taldir svarthol Ræða „endurskipulagningu“ herstöðva í Sýrlandi Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Sjá meira