Herlögregla vaktaði drukkna Verslinga 21. júní 2007 05:15 Fimm herlögreglubílar og herlögreglumenn með alvæpni vöktuðu ungmennin seinni vikuna á Fuerteventura.
Verslunarskólanemar voru vaktaðir af herlögreglu á Kanaríeyjum eftir óspektir, næturbrölt og skemmdarverk. Ferðanefnd skólans skoðaði staðinn í vetur en nemarnir voru þrátt fyrir það ósáttir við aðstæður. Áttu að fá hótel út af fyrir sig. „Ferðaskrifstofurnar segja okkur bara það sem við viljum heyra. Síðan þegar við mætum á staðinn er raunin önnur. Allar ferðaskrifstofurnar koma jafn illa fram við okkur,“ segir Vilmundur Sveinsson, fyrrverandi forseti Nemendafélags Verslunarskóla Íslands. Tvö hundruð og fjörutíu manna útskriftarhópur frá skólanum fór á vegum Heimsferða til Fuerteventura á Kanaríeyjum í tveggja vikna ferð í lok maí. „Þetta er ekki besti staðurinn fyrir útskriftarhóp vegna þess að þarna er mikið af fjölskyldufólki og ellilífeyrisþegum og ekkert að gera fyrir ungt fólk fyrir utan litla verslunarmiðstöð sem hægt var að fara í,“ segir Vilmundur. Hann bætir við að þeim hafi verið lofað að skemmtistaðir yrðu opnir fram eftir nóttu. Það reyndist ekki rétt og þegar þeir lokuðu klukkan tvö var farið á hótelið. „Okkur var sagt að við yrðum ein á hótelinu en það var heldur ekki satt. Gestir hótelsins, sem var breskt fjölskyldufólk, kvartaði undan látunum í okkur,“ segir Vilmundur. Jónína Guðný Bogadóttir útskriftarnemi segir þau hafa verið send út á fölskum forsendum. „Okkur var lofað fjörugu næturlífi sem reyndist ekki vera. Seinni vikuna var torgið sem við héldum til á vaktað af herlögreglu,“ segir Jónína Guðný. Hún segir neyðarfund hafa verið haldinn á hótelinu eftir að skemmdarverk voru unnin á sólbekkjum og tæmt hafði verið úr sex slökkvitækjum. „Á fundinn mættu fimmtán herlögreglumenn með alvæpni og mér fannst okkur ógnað,“ segir Jónína Guðný. Bjarni Hrafn Ingólfsson, markaðsstjóri Heimsferða, segir að reynt sé í lengstu lög að hafa útskriftarhópa eina á hótelum enda sé skemmtanamunstur útskriftarhópa og fjölskyldufólks mjög ólíkt. Hann segist þekkja Fuerteventura vel og þarna sé hægt að gera flest það sem er í boði í öðrum sólarlöndum. „Útskriftarhópar hafa farið áður á þennan sama stað án þess að kvarta enda eru hópar alltaf ólíkir.“ Bjarni Hrafn segir ferðanefnd á vegum skólans hafa farið til Fuerteventura og tekið út aðstæður og þeim hafi litist vel á staðinn. „Ég fullyrði að við hjá Heimsferðum gerðum allt sem við gátum til að ferðin heppnaðist sem best,“ segir Bjarni Hrafn.
Mest lesið Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Innlent Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Innlent Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt Innlent Tveir látnir eftir að bíl var ekið í hlið húss Erlent Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Innlent „Gegnumgangandi bongó um helgina“ Veður Friður í augsýn að uppfylltum skilyrðum Erlent Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Innlent „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Innlent Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Innlent Fleiri fréttir Eldhaf gaus upp í vélarrúmi og skipið rak í þrjá tíma Sæbrautargátan leyst: Það er 58, ekki 60 - en samt ekki alveg Ríkisstjórnin ýmist bensínlaus bátur eða á leikskóla í platheimi Friðarsamkomulag, rauð ljós á Sæbraut og ógeðfelldar lýsingar í dómsal Njósnarar enn í lögsögunni Felldi loks tár þegar andlát eiginmannsins var rætt „Af hverju má ég vera í Hveragerði en Grindvíkingar ekki í Grindavík?“ Hittust átta sinnum til að úrskurða um risaeðlubeinin Bólar ekkert á ályktun ungra miðflokksmanna Kviknaði í raftæki Samgönguáætlun samþykkt á Alþingi Staðfesta synjun SÍ: „Þetta er ekki bara fyrir Jón Atla“ Eigi von á tæplega 200 þúsund gestum Nýsamþykktum samningi hjólhýsabyggðarinnar sagt upp Eldur kviknaði í Toppstöðinni „Við getum alveg fullyrt það að sumarið sé komið“ Skilyrðin til þess fallin að „drepa samfélagið“ Stungu dóttur sína í hjartað: „Hún var mjög hugrökk“ Faðir sýknaður af því sem eftir stóð af ásökunum dóttur Samkomulag um þinglok og blíða í borginni Borgin afþakkar risaeðlubein Segja brottfararstöð ekki samrýmast Barnasáttmálanum Frostbitnir Frónbúar kætast í dag Segir Icelandair krefjast meiri vinnu fyrir lægri laun Logi sker hlaðvarpara úr snöru Fjölmiðlanefndar Búið að semja um þinglok Sakfellingu fyrir að nauðga sofandi kærustu snúið við í Landsrétti Ming Ting mætt í dómsal vegna Edition-málsins Róbert leiðir vinnu hagræðingarhóps nýs meirihluta Meirihluti bíður eftir greiningu í meira en ár Sjá meira