Körfubolti

Hélt hann væri búinn að vinna og sleppti því að skjóta | Myndband

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Ndugba í leik með Bryant.
Ndugba í leik með Bryant. vísir/getty
Algjörlega lygilegt atvik átti sér stað í bandaríska háskólakörfuboltanum á mánudag.

Þá hélt Ikenna Ndugba, leikmaður Bryant, að hans lið væri búið að vinna leikinn. Kastaði boltanum upp í loftið til þess að tefja og fagnaði svo.

Vandamálið var að hans lið var einu stigi undir en sú staðreynd fór augljóslega algjörlega fram hjá leikmanninum.

Hann hefur líklega haldið að sitt lið hefði náð þriggja stiga forskoti er það skoraði sína síðustu körfu í leiknum. Andstæðingurinn svaraði svo með tveggja stiga körfu og þá fór stærðfræðin eitthvað að stríða Ndugba.

Mjög svekkjandi endir hjá liðinu sem hafði unnið upp átta stiga forskot og komst yfir í fyrsta sinn í 13 mínútur áður en lið Brown skoraði sigurkörfuna 4 sekúndum fyrir leikslok.

Sjá má þetta atvik hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×