Matur

Helgarmaturinn - Eggin hans Benedikts

Þórdís Harpa Lárusdóttir.
Þórdís Harpa Lárusdóttir.

Þórdís Harpa Lárusdóttir flugfreyja ætlar að bjóða fjölskyldunni uppá þennan ljúffenga morgunverð um páskana.

"Þessi réttur er í miklu uppáhaldi hjá okkur, frábært að gera hann á góðum páskamorgni í náttfötunum, sósan er líka svo fallega páskagul á litinn. Svo heitir sonur minn líka Benedikt þannig að þessi réttur stendur okkur mjög nærri."

Eggin hans Benedikts fyrir 4

fyrir 4

4 Egg

Ca 2-3 msk edik

3 eggjarauður

250 gr smjör

Klípa af blautum kjötkrafti(ég nota Oswald og finnst hann bestur, fæst í Fjarðarkaupum)

Safi úr ca hálfri lítilli sítrónu

Þykkar sneiðar af góðri reyktri skinku

Gott súrdeigsbrauð

Vatn sett í góðan pott, edikið sett út í og vatnið látið ná léttri suðu. Eggin eru svo brotin beint yfir létt sjóðandi edikvatnið, eitt í einu, (passa að gefa þeim hvert sitt pláss) leyfa þeim að malla í vatninu í ca 3 min,eða þangað til að það er ca hálfsoðið, mér finnst best að hafa rauðuna lina. Taka eggin upp úr vatninu með gataspaða, þannig að allt vatnið renni af þeim.

Smjörið er brætt í litlum potti með kjötktraftinum (á að vera heitt en ekki sjóðandi) eggjarauðurnar þeyttar, kjötkraftssmjörinu með sítrónusafanum bætt varlega útí eggin í mjórri bunu og þeytt áfram, smakkað til og hægt að þynna með meira smjöri eða sítrónusafa eftir vild.

Brauðið er ristað,skinkan steikt og lögð ofan á brauðið, eggin koma þar á eftir, og í lokin sósan sett yfir allt saman. Yndislegt, ljúffengt og gott.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×