Enski boltinn

Heimurinn fær að vita hvað stóð í SMS sendingum Mourinho til Evu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Eva Carneiro hleypur inn á völlinn þegar Eden Hazard meiddist gegn Swansea þann 8. ágúst 2015.
Eva Carneiro hleypur inn á völlinn þegar Eden Hazard meiddist gegn Swansea þann 8. ágúst 2015. Vísir/Getty
Jose Mourinho mun taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Manchester United á næstu dögum en áður en hann getur farið að setja saman liðið sitt á Old Trafford þá á hann enn eftir að gera upp málið sem átti örugglega þátt í endalokum hans á Stamford Bridge.

Eva Carneiro, fyrrum læknir Chelsea-liðsins, var rekin úr sínu starfi eftir deilur við Jose Mourinho síðasta haust. Það verður réttað í máli hennar 6. júní næstkomandi og þar mun ýmislegt koma fram í dagsljósið.

Eva Carneiro ætlar að sækja rétt sinn og heimta bætur frá Chelsea fyrir óréttmæta uppsögn sína.

Meðal þess sem verður lagt fram sem sönnunargögn í málinu verða bæði SMS skilaboð og tölvupóstar frá Jose Mourinho til Evu. Daily Mail segir frá því að það getið orðið vandræðalegur lestur fyrir portúgalska knattspyrnustjórann.  

Jose Mourinho mun einnig þurfa að mæta í réttinn og bera vitni í málinu en hann setti Evu út af sakramentinu þegar hann var ósáttur með það þegar hún fór inná á lokamínútunum í leik Swansea og Chelsea til að huga að meiddum leikmanni.

Edin Hazard þurfti þar með að yfirgefa völlinn þegar Chelsea var að reyna að tryggja sér sigur á lokasekúndum leiksins og Jose Mourinho missti gjörsamlega stjórn á sér.

Jose Mourinho talað meðal annars um barnslega hegðun hjá lækninum sem fékk ekki í framhaldinu að koma nálægt leikjum liðsins eftir það. Eva var á endanum látin taka pokann sinn.

Eva var mjög ósátt með endalok sín hjá Chelsea og samskipti hennar við Jose Mourinho urðu að miklu fjölmiðlafári. Jose Mourinho entist ekki mikið lengur en Eva á Brúnni því hann var rekinn í desember.

Eva Carneiro hefur fundið sér nýtt starf en hún vinnur nú á heilsumiðstöð í Gíbraltar og í nóvember giftist hún könnuðinum Jason Cateret.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×