Leikjavísir

Heimsmetið í Donkey Kong slegið tvisvar á sex tímum

Samúel Karl Ólason skrifar
Donkey Kong hefur verið vinsæll um áraraðir.
Donkey Kong hefur verið vinsæll um áraraðir. Vísir/Getty
Donkey Kong er líklega einhver vinsælasti tölvuleikur sem hefur verið gerður. Fyrst var hægt að spila hann í spilakössum árið 1981, en nú er leikurinn orðinn að skringilegri keppnisíþrótt. Oft á tíðum líða heilu árin áður en stigamet falla, en það var ekki svo nú nýverið.

Heimasíðan DonkeyKongForum hélt nýverið mót í leiknum gamla. Þar tókst manni sem heitir Wes Copeland að ná 1.170.500 stigum og sló hann þannig út met Robbie Lakeman, samkvæmt Wired.

Lakeman var þó ekki hættur og tókst honum að ná 1.172.100 stigum, eða einungis 1.600 stigum meira en Copeland. Þannig setti hann nýtt heimsmet og hélt sæti sínu.

Hér má sjá hluta af spilun Copeland
Watch live video from WesCopeland on Twitch Þegar Lakeman setti met sitt aftur.
Watch live video from lakeman421 on Twitch





Fleiri fréttir

Sjá meira


×