Heimaslóðirnar heilla Jón 26. júní 2010 10:00 Jón S. von Tetzchner
Norska hugbúnaðarfyrirtækið Opera Software býst við því að auka gagnaflutninga um þrjátíu prósent á sama tíma og orkunotkun dregst saman um rúm 35 prósent. Þetta þakkar fyrirtækið flutningi á stórum hluta af gagnavinnslu sinni til gagnavers Thor Data Center, sem vígt var í Hafnarfirði fyrir rétt rúmum mánuði. Gagnaflutningurinn á að fara um sæstrengina Danice og Farice. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Opera Software, sem send var út til notenda hugbúnaðarfyrirtækisins um heim allan í gær. Opera Software hefur um árabil staðið framarlega í hönnun á netvöfrum bæði fyrir farsíma og einkatölvur. Þá hefur það búið til vafra og aðrar tæknilegar lausnir fyrir leikjatölvur á borð við Nintendo Wii. Í tilkynningunni segir að gagnaverið sé umhverfisvænt, knúið af endurnýjanlegri orku og það fyrsta sinnar tegundar í heiminum. Jón S. von Tetzchner, annar tveggja stofnenda Opera Software, Íslendingur í húð og hár og forstjóri fyrirtækisins fram yfir síðustu áramót, kom hingað til lands við undirritun samnings um flutning á gagnavinnslunni í maí. Gagnageymslur Opera Software eru á sex stöðum í heiminum, í Noregi, Póllandi, Kóreu, og Kína, auk Íslands.- jab
Mest lesið Heimsins fyrsti billjónamæringur Viðskipti erlent Stærstu afrekin að koma öllum út úr húsi á tíma Atvinnulíf Enn fjölgar aflýsingum Viðskipti innlent Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Viðskipti erlent Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Viðskipti innlent Sögulegri skráningu SpaceX lokið Viðskipti erlent Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Viðskipti innlent Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Viðskipti innlent Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Viðskipti innlent Alvöru þægindi eftir átján holur Samstarf Fleiri fréttir Enn fjölgar aflýsingum Ferðaþjónusturisar hætta við samruna Deilan harðnar á ný: Fleiri aflýsingar hjá Icelandair Hækka loðnuráðgjöf aftur í um 358 þúsund tonn Ísland sjaldnast uppfyllt upptökuskilyrði fyrir evru Þurfi að taka leiðinlegar ákvarðanir Björgvin kjörinn nýr formaður FHG Festa og Gildi vilja sameinast Halli ríkissjóðs eykst um tugi milljarða milli ára Kanna hvort pottur hafi verið brotinn hjá Oculis Matvælaverð hafi hækkað minna en laun frá 2020 Lækka verð á öllum súkkulaðivörum um tíu prósent Skýrsla AGS: Aukin hætta á minni hagvexti og meiri verðbólgu Grátlegt hversu miklum peningum fólk tapar í fjársvikum Sjálfsafgreiðslukassarnir skili ekki lægra vöruverði Nýir kælar og kjúklingastaður í Lindunum eftir stærstu endurbætur Krónunnar Stjórnvöld geti gert miklu meira til að lækka matvöruverð Forstjóri Kviku hyggst láta af störfum Ráðinn staðarverkfræðingur Nýs Landspítala á Akureyri Uppsagnir hjá Brimi á Vopnafirði Hopp tekur rafræn ökuskírteini í notkun í appinu Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Hækka vöruverð: „Umhverfið mjög krefjandi“ Ásta og Sigurður til liðs við Ljósleiðarann Bein útsending: Enn hærri skattar, fyrir hvern? Hafi áhrif á tugi ungmenna: „Þetta eru vel launuð störf“ Vísitala heildarlauna hækkaði um 4,9 prósent Snorri í stöðu framkvæmdastjóra Slökkva á ofni vegna verndarráðstafana: „Þetta bitnar á krakkagreyjunum“ Starfsmannaleiga mátti ekki hýrudraga rafvirkja Sjá meira