Handbolti

Heimasigur hjá Kiel sem fór á toppinn

Alfreð er oftar en ekki líflegur á hliðarlínunni.
Alfreð er oftar en ekki líflegur á hliðarlínunni. vísir/getty
Kiel, lærisveinar Alfreðs Gíslasonar, áttu ekki í teljandi vandræðum með Leipzig á heimavelli í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag, en lokatölur urðu 29-25.

Kiel vann að lokum fjögurra marka sigur, en eftir að hafa verið 18-12 yfir í hálfleik þá gáfu heimamenn aðeins eftir í síðari hálfleik og því fór sem fór.

Alfreð og félagar eru því komnir í toppsætið, en Rhein-Neckar Löwen á þó leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×