Lífið

Heiður að vera treyst til forystu í evrópskri stjórn

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Á Íslandi hefur verið dregið úr sögukennslu á undanförnum árum, að sögn Lóu Steinunnar.  Hún er ekki nógu ánægð með þá þróun.
Á Íslandi hefur verið dregið úr sögukennslu á undanförnum árum, að sögn Lóu Steinunnar. Hún er ekki nógu ánægð með þá þróun. Vísir/Vilhelm
Euroclio eru fjölmenn samtök þeirra sem sinna sögukennslu í Evrópu og það er heiður að vera treyst til forystu í þeim. Við sitjum í stjórn í sex ár að hámarki, ég er búin að vera í fjögur og var orðinn mesti reynsluboltinn,“ segir Lóa Steinunn Kristjánsdóttir, sögukennari í Menntaskólanum við Sund og nýr forseti Euroclio.

Euroclio voru stofnuð fyrir 25 árum í kringum fall Berlínarmúrsins. „Þá var farið að endurskrifa námsefni í fyrrum Austur-Evrópuríkjum, þar sem oft þurfti að breyta mjög miklu,“ upplýsir Lóa. „Við höfum líka unnið með heimafólki við námsgagnagerð á Balkanskaganum og Svartahafssvæðinu, þar sem áhersla er lögð á hinn sameiginlega arf frekar en sundrandi þætti.“

Samtökin hafa skrifstofu í Haag með fimm starfsmönnum. Auk þess segir Lóa marga einstaklinga vinna innan samtakanna í sjálfboðavinnu, þar á meðal hana sjálfa.

„Ég hef setið fundi og tekið þátt í að móta námskeið og leiðsegja þar og finnst það áhugavert. Við gefum líka út rafræna kennslubók sem heitir historyana.eu og ég hef skrifað í hana. Svo höldum við árlega eina stóra ráðstefnu og minni málþing inn á milli.“

Lóa er einmitt nýkomin af stórri ráðstefnu í Belfast. Hún kveðst aldrei hafa komið til þeirrar borgar áður og segir klofninginn í samfélaginu mun meiri en hún hafi átt von á.

„Þarna eru enn múrar milli hverfa og mismunandi skólar eftir trúarbrögðum fólks og uppruna. Það var sérstök upplifun eftir tveggja tíma flugferð frá Íslandi. Þarna er samt lífsglatt fólk og kennarar vinna saman þvert á alla múra og reyna að minnka togstreituna.“

Á Íslandi hefur verið dregið úr sögukennslu á seinni árum, að sögn Lóu. Hún er ekki nógu ánægð með þá þróun.

„Saga er viðamikil grein á öllum skólastigum víðast í Evrópu, einkum í efri bekkjum grunnskóla og ef við horfum til Danmerkur þá eru stærðfræði og saga stóru greinarnar þar í framhaldsskóla. En hér hefur verið farið inn á svo mikla félagsfræðilínu síðustu áratugina.“

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu 5. apríl.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×