Enski boltinn

Hefur ekki áhyggjur af orðrómum

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Manuel Pellegrini.
Manuel Pellegrini. vísir/getty

Manuel Pellegrini, stjóri Man. City, hefur ekki áhyggjur af fréttum fjölmiðla um að Pep Guardiola eigi að taka við starfi hans hjá félaginu.

Hann vill heldur ekki tala um þann orðróm að Lionel Messi muni fylgja Guardiola til félagsins.

„Ég tala ekki um orðróma. Ég held að allir knattspyrnustjórar heimsins vilji hafa Messi í sínu liði," sagði Pellegrini og svaraði ekki fleiri spurningum um Messi.

Hann hefur ekki áhyggjur af starfi sínu hjá City þar sem hann á tvö ár eftir af samningi.

„Ég tala ekki um orðróma. Þið fáið alltaf sama svarið hjá mér. Það þýðir ekkert að spyrja mig svona."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×