Viðskipti innlent

HB Grandi á Aðalmarkað Kauphallarinnar í dag

Karl Ólafur Hallbjörnsson skrifar
Forstjóri HB Granda Vilhjálmur Vilhjálmsson hringir Kauphallarbjöllunni í dag.
Forstjóri HB Granda Vilhjálmur Vilhjálmsson hringir Kauphallarbjöllunni í dag. Vísir/GVA
Bréf HB Granda verða tekin til viðskipta á aðalmarkaði Kauphallarinnar í dag.

Vilhjálmur Vilhjálmsson, forstjóri HB Granda, hringir bjöllu Kauphallarinnar við athöfn klukkan 9.25.

Að því loknu verður opnað fyrir viðskipti með bréf fyrirtækisins á aðalmarkaði Kauphallarinnar.

Fyrirtækið verður eina sjávarútvegsfyrirtækið á Aðalmarkaði en hingað til hefur það verið skráð á First North-markað Kauphallarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×