Haustkræsingar Rósu: Brokkolísúpa með osti

Vísir Matur 07. október 2011 20:00
Rósa eldar upp úr matjurtagarðinum sínum í Íslandi í dag.
Rósa eldar upp úr matjurtagarðinum sínum í Íslandi í dag.
Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsingar á sinn einstaka hátt. Kíkið síðan á uppskriftirnar og spreytið ykkur sjálf.




Brokkolísúpa með osti

f. fjóra
1 msk. ólífuolía
1 laukur eða 2-3 vorlaukar, smátt skornir
3-4 hvítlauksrif, marin
400 g brokkolí (spergilkál), skorið í bita, stilkarnir notaðir líka
0,8-1 líter kjúklingasoð
2 handfylli spínat (má sleppa)
salt og grófmalaður pipar
1-2 dl ostur, helst cheddar, en má nota fleiri tegundir og t.d. gráðost
Mýkið laukinn og hvítlaukinn í ólífuolíunni í potti við miðlungshita. Bætið síðan brokkolí út í og veltið saman í pottinum í 2-3 mínútur. Setjið síðan kjúklingasoðið saman við, ásamt spínatinu og kryddið að smekk. Látið suðuna rétt koma upp. Slökkvið síðan undir pottinum og maukið grænmetið með töfrasprota eða í blandara. Farið varlega svo þið brennið ykkur ekki á sjóðandi heitri súpunni. Þegar súpan er orðin hæfilega slétt og þykk þá er ostinum hrært saman við, - passið að súpan sé ekki á heitri hellu þegar ostinum er hrært út í, því hann má alls ekki sjóða. Gott að strá smá osti yfir þegar súpan er borin fram. Stundum sleppi ég spínatinu, set smá klettasalat í staðinn, og/ eða nota ferskar kryddjurtir saman við; þá helst steinselju en einnig ferska myntu. Þá kemur mjög góður eftirkeimur.



Laxaréttur (forréttur/smáréttur)
f. 2-4
150 g hrár lax, skorinn í bita
4 msk. sítrónusafi
2 msk. sesamolía
1 msk. sólblómaolía ( eða önnur bragðlítil olía)
c.a. 2 msk. af ristuðum sesamfræjum og grófu salti blandað saman við
fersku kóríander og niðurklipptu þangi eða sölum stráð yfir (má sleppa)
Hrærið sesamolíu, sítrónusafa og sólblómaolíu saman í lítilli skál. Ristið sesamfræin örskamma stund á heitri pönnu og látið kólna (ég notaði blöndu af hvítum og svörtum sesamfræjum, en má nota hvora tegundina sem er). Steytið síðan sesamfræ og gróft salt saman, helst í mortéli. (hlutföllin eiga að vera: 5 msk. sesamfræ á móti 1 msk. gróft salt)
Setjið niðurskorna laxinn í skál og blandið sítrónusafa- og olíuhrærunni saman við ásamt sesamfræjunum og saltinu. Látið standa í ísskáp í 10 mínútur áður en borið fram. Ef laxinn er hafður lengur í sítrónusafablöndunnni þá ,,eldast'' hann eða tekur sig meira af sítrónusafanum og það er að flestra mati síðra. Það er best að hafa fiskinn hráan og aðeins létt marineraðan. Gott er að bera fram með ristuðu brauði og/eða fersku salati, en rétturinn stendur líka alveg fyrir sínu án alls meðlætis.


Gulrótarsúpa
f. 4-6
2 msk. ólífuolía
1 laukur, smátt saxaður
1 tsk. karrí
4 hvítlauksrif, marin
3-5 cm fersk engiferrót, smátt söxuð
500-600 g gulrætur, saxaðar gróft
1 lítri kjúklinga- eða grænmetissoð
1 lítil dós kókosmjólk (165 ml) (má sleppa)
salt og grófmalaður pipar
ferskt kóríander (ef vill)
límónusafi ( ef vill)
Hitið ólífuolíuna í potti við miðlungshita og mýkjið lauk, hvítlauk og engifer í henni í nokkrar mínútur. Kryddið með karríi. Bætið síðan soðinu útí og gulrótunum og látið malla við vægan hita í um 25 mínútur. Setjið síðan súpuna í matvinnsluvél eða notið töfrasprota beint í pottinn og maukið þar til verður að nokkuð sléttri og fallegri súpu. Bætið þá kókosmjólkinni saman við en við það að hafa hana í uppskriftinni verður súpan silkimjúk og kremkenndari og yndislegur kókoskeimur kitlar einnig bragðlaukana. Gott er að strá ferskum kóríanderlaufum og dreifa nokkrum dropum af límónusafa yfir hverja skál þegar súpan er borin fram.


Gulrófusnakk og franskar.
Gulrófur sneiddar í örþunnar sneiðar, eins og flögur eða í ílanga þykkari bita eins og franskar. Þerrið aðeins mesta vökvann úr rófunum með eldhúspappír, þannig verða þær stökkari. Veltið upp úr smá ólífuolíu, salti og jafnvel smátt skornum hvítlauk, eða uppáhaldskryddinu ykkar. Bakið á ofnplötu sem þakin hefur verið bökunarpappír í 30-40 mínútur við 180 gráður. Gott er að velta þeim (snúa við) amk. einu sinni á meðan á elduninni stendur.
Grænkálssnakk
Grænkálsblöðin skorin í hæfilega bita. Smá ólífuolíu dreift yfir ásamt grófu salti. Bakað í um 10 mínútur við 180 gráður, en fylgist vel með síðustu mínúturnar og passið að taka úr ofninum áður en kálið fer að brúnast. Þá er það ofbakað og kemur allt annað bragð af því.

Fleiri fréttir - Matur

Matur 18. maí. 2012 15:15

Helgarmaturinn - Nautalundir að hætti Nínu Bjarkar

Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari býr í Lúxemborg með fjölskyldu sinni. Hún nýtur þess ...  

Meira
Matur 11. maí. 2012 15:00

Helgarmaturinn - Sumarlegar bollakökur ritstjóra

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og leikkona, eyðir ófáum stundum í eldh...  

Meira
Matur 04. maí. 2012 17:00

Nammigræðgi starfsfélaganna spillir oft góðu plani

Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka leggur mikið upp úr góðri heil...  

Meira
Matur 04. maí. 2012 15:00

Helgarmaturinn - Sumarsalöt Brynju Nordqvist

Það er ekki hægt að neita því að mataræðið léttist oft á sumrin í takt við léttari lund og...  

Meira
Matur 27. apr. 2012 14:00

Helgarmaturinn - Prótínvefja að hætti Hönnu Kristínar

Hanna Kristín Didriksen setur heilsuna í forgang og vandar hvað hún setur ofan í kroppinn....  

Meira
Matur 20. apr. 2012 12:45

Helgarmaturinn - Völundur Snær með grilluppskrift

Völundur Snær sjónvarpskokkur deilir með Lífinu, aukablaði Fréttablaðsins í dag fyrstu gri...  

Meira
Matur 17. apr. 2012 09:32

Með matreiðsluþátt á BBC

"Það er frábært að BBC sé að sýna þættina og þátturinn hefur fengið mikla dreifingu fyrir ...  

Meira
Matur 13. apr. 2012 11:00

Helgarmatur Loga Geirssonar

"Uppáhaldið mitt er þessi uppskrift sem ég og konan eldum saman um helgar,“ segir Lo...  

Meira
Matur 05. apr. 2012 11:00

Lúxus hafragrautur - Bestur á morgnana eða milli mála

"Hafragrauturinn er mitt uppáhald og er fastur liður á nánast hverjum degi,“ segir E...  

Meira
Matur 02. apr. 2012 10:00

Borðað með puttunum á eþíópískum veitingastað

"Ég flutti til Íslands árið 2000 og mig langaði alltaf að opna eþíópískan veitingastað og ...  

Meira
Matur 23. mar. 2012 14:00

Ungfrú Ísland opnar matardagbókina

Skagamærin Sigrún Eva Ármannsdóttir, 19 ára, ungfrú Ísland 2011, gaf sér tíma til að skrif...  

Meira
Matur 23. mar. 2012 12:00

Helgarmaturinn - dásamlegur eftirréttur

Lára Berglind Helgadóttir og eiginmaður hennar, Andrés Guðmundsson, eigendur Skólahreysti ...  

Meira
Matur 16. mar. 2012 11:30

Helgarmaturinn - Grillaður humar

Þegar fyrrum þulan og íslenskufræðingurinn, Anna Rún Frímannsdóttir vill dekra við fjölsky...  

Meira
Matur 04. mar. 2012 10:00

Beint úr eldhúsinu

Þrír erlendir kokkar keppa í dag í Hörpu um titilinn kokkur ársins á hátíðinni Food and Fu...  

Meira
Matur 17. feb. 2012 15:30

Helgarmaturinn

Rakel Sif Sigurðardóttir, nær­ingar- og heilsuráðgjafi, heldur úti dásamlegri síðu á Face­...  

Meira
Matur 11. feb. 2012 10:00

Helgaruppskrift Helgu Möller

Helga Möller söngkona segist jafnvel elda helgarmatinn á mánudögum sökum óreglulegs vinnut...  

Meira
Matur 13. jan. 2012 19:27

Nýtt ár - breytt mataræði

Ef þú ert ein(n) af þeim sem ætlar að bæta mataræðið núna eftir hátíðirnar, þá gæti þessi ...  

Meira
Matur 21. des. 2011 16:08

Aðventukræsingar Rósu: Girnilegir eftirréttir um jólin

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að súkkulaðifreistingu og bökuðum, fylltum e...  

Meira
Matur 15. des. 2011 12:47

Eldum saman hlýtur hin eftirsóttu Gourmand-verðlaun

Matreiðslubókin Eldum saman eftir Guðmund Finnbogason var á dögunum valin besta barna- og ...  

Meira
Matur 14. des. 2011 11:00

Hátíð að hætti Nönnu: Silungstoppar, pörusteik og panna-cotta

Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur eldar alltaf hangikjöt á jóladag. Á aðfangadag eru anda...  

Meira
Matur 13. des. 2011 20:00

Gæsalifur og Galette de roi

Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheill – Save the Children á Íslandi, bj...  

Meira
Matur 13. des. 2011 09:44

Aðventukræsingar Rósu: Chillísúkkulaði og brauðkollur

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að heitu chillísúkkulaði, brauðkollum með fy...  

Meira
Matur 11. des. 2011 10:00

Vogaskóla frómas

Uppskrift að ananasfrómas sem fjölskylda Birnu Jónsdóttur hjúkrunarfræðings gæðir sér á hv...  

Meira
Matur 10. des. 2011 11:00

Tvær gerðir af gómsætu smurbrauði

Smurbrauð með rækjum og smurbrauð með reyktum laxi, kavíar og avókadómauki...  

Meira
Matur 05. des. 2011 18:53

Hráfæðis-piparmyntusúkkulaði

Hér er gómsæt uppskrift Sólveigar Eiríksdóttur á hráfæðis-piparmyntusúkkulaði sem hún elda...  

Meira
Matur 25. nóv. 2011 11:15

Eldar og bakar á hverjum degi

„Ég veit fátt betra en að borða, það er mikið áhugamál hjá mér,“ segir Eva Lau...  

Meira
Matur 12. nóv. 2011 20:00

Harry‘s vekur athygli

Filippseyski veitingastaðurinn Harry‘s er umfjöllunarefni blaðamanns The Philippine ...  

Meira
Matur 11. nóv. 2011 13:00

Matardekur Hrefnu

Það er ekki í kot vísað að leggja sér góðgæti Hrefnu Rósu Sætran til munns, en hún kætir m...  

Meira
Matur 08. nóv. 2011 16:51

Smoothie að hætti Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir er nýkomin heim frá Frankfurt þar sem hún náði að selja bókina s...  

Meira
Matur 18. okt. 2011 14:00

Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsi...  

Meira
Matur 07. okt. 2011 20:00

Haustkræsingar Rósu: Brokkolísúpa með osti

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsi...  

Meira
Matur 23. sep. 2011 11:00

Heimilismatur í sparibúningi

Nýir eigendur tóku við Café Aroma í Hafnarfirði fyrir ári og hefur staðurinn fest sig vel ...  

Meira
Matur 02. sep. 2011 11:00

Líka fyrir augað

Tuna Dís Metya er af úkraínskum og tyrkneskum ættum, fædd og uppalin í Bordeaux í Frakklan...  

Meira
Matur 24. ágú. 2011 10:00

Eldað í Vesturheimi

Rómantík ræður ríkjum hjá ungum, íslenskum hjónum í litlu koti í New York, en þar stendur ...  

Meira
Matur 23. ágú. 2011 21:00

Lífrænn markaður á Lækjartorgi

Frá miðjum júlí hefur Ari Hultquist boðið vegfarendum að kaupa glænýtt lífrænt ræktað græn...  

Meira
Matur 23. ágú. 2011 14:30

Þurrkuðu eplin mikið sælgæti

Þorsteinn Sigmundsson, bóndi í Elliðahvammi, ræktar epli og býr til eplasafa og eplasælgæt...  

Meira
Matur 05. júl. 2011 12:30

Himneskar karamellukökur Rikku

Friðrika Hjördís Geirsdóttir er landsmönnum að góðu kunn, ekki síst fyrir skrif og þætti u...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Matur / Haustkræsingar Rósu: Brokkolísúpa með osti