Handbolti

Haukar og FH mætast í hreinum úrslitaleik á Hafnarfjarðarmótinu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ragnar Jóhannsson skoraði 10 mörk fyrir FH í kvöld.
Ragnar Jóhannsson skoraði 10 mörk fyrir FH í kvöld. Vísir/Valli
Haukar og FH unnu bæði leiki sína á Hafnarfjarðarmótinu í handbolta karla og mætast því í hreinum úrslitaleik á Strandgötunni á morgun. Haukar unnu 30-25 sigur á ÍBV í kvöld en FH vann 27-25 sigur á Akureyri.

Ragnar Jóhannsson skoraði 10 mörk fyrir FH í sigrinum á norðanmönnum en hann var í aðalhlutverki í FH-sókninni ásamt þeim Ásbirni Friðrikssyni (8 mörk) og Magnúsi Óla Magnússyni (6 mörk).

Úrslitaleikur Hauka og FH hefst klukkan 16.00 á morgun en klukkan 14.00 spila ÍBV og Akureyri um 3. sætið.

Afturelding og Stjarnan unnu leiki sína í UMSK mótinu í kvöld en þeir voru báðir spilaðir í Digranesinu í kvöld. Það má sjá markaskorara úr leikjunum hér fyrir neðan. Mótið heldur áfram á morgun og klárast á sunnudaginn.



Úrslit úr Hafnarfjarðarmótinu í kvöld:

Haukar - ÍBV 30-25 (13-16)

Mörk Hauka: Adam Haukur Baumruk 10, Árni Steinn Steinþórsson 6, Leonard Harðarson 4, Þórarinn Leví Traustason    3, Einar Pétur Pétursson 3, Jón Þorbjörn Jóhannsson 2, Þröstur Þráinsson 2.

Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson 10, Einar Sverrisson 4, Grétar Þór Eyþórsson 4, Agnar Smári Jónsson 3, Dagur Arnarson 2, Sindri Georgsson 1, Guðni Ingvarsson 1.



FH - Akureyri 27-25 (15-13)

Mörk FH: Ragnar Jóhannsson 10, Ásbjörn Friðriksson 8, Magnús Óli Magnússon 6, Henrik Bjarnason 1, Ísak Rafnsson    1, Andri Berg Haraldsson 1.

Mörk Akureyrar: Kristján Jóhannsson 9, Elías Már Halldórsson 5, Sigþór Heimisson 5, Heiðar Aðalsteinsson 5, Brynjar Grétarsson 2, Jón Sigurðsson 1.



Úrslit úr UMSK-mótinu í kvöld

Afturelding-HK 26-17 (13-17)

Mörk Aftureldingar: Jóhann Jóhannsson 7, Elvar Ásgeirsson 6, Gunnar Malmquist 4, Pétur Júníusson 3, Böðvar Páll Ásgeirsson 2, Árni Bragi Eyjólfsson 2, Ágúst Birgisson 2.

Mörk HK: Leó Snær Pétursson 3, Garðar Svansson 3, Daði Laxdal Gautason 3, Óðinn Þór Ríkharðsson 2, Björn Þórsson Björnsson 2, Aron Gauti Óskarsson 1, Þorgrímur Smári Ólafsson 1, Andrés Wolanczyk 1, Andri Þór Helgason 1.

Grótta-Stjarnan 23-27 (14-13)

Mörk Gróttu: Viggó Kristjánsson 5, Friðgeir Arnarsson 3, Aron Heiðar Guðmundsson 3, Styrmir Sigurðarsson 3, Aron Valur Jóhannsson 3, Þorgeir Bjarki Davíðsson 2, Þráinn Orri Jónsson 1, Árni Benedikt Árnason 1, Kristján Þór Karlsson 1, Hjalti Már Hjaltason 1.

Mörk Stjörnunnar: Andri Hjartar Grétarsson 7, Sverrir Eyjólfsson 4, Víglundur Jarl Þórsson 3, Hrannar Bragi Eyjólfsson 3, Hjálmtýr Alfreðsson 3, Hilmar Pálsson 2, Ari Pétursson 2, Eyþór Magnússon 2, Þórir Ólafsson 1.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×