Hátíð að hætti Nönnu: Silungstoppar, pörusteik og panna-cotta

Matur 14. desember 2011 11:00
Nanna Rögnvaldardóttir og jólaréttir sem hún útbýr.
Nanna Rögnvaldardóttir og jólaréttir sem hún útbýr.
Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur eldar alltaf hangikjöt á jóladag. Á aðfangadag eru andabringur að beiðni barnabarnanna en meðlætið breytist ár frá ári. Hún gaf nýverið út matreiðslubókina Jólamatur Nönnu og gefur hér uppskriftir að forrétti, aðalrétti og eftirrétti.

Jól Nönnu eru nokkuð afslöppuð að hennar sögn. Samt hristir hún fram úr erminni þrjár veislur á þremur dögum.

„Ég er með boð á Þorláksmessu þar sem ég býð upp á ýmiskonar kræsingar. Svo fæ ég fjölskylduna yfirleitt í mat á aðfangadag og í hádeginu á jóladag," lýsir Nanna. Hún er innt eftir því hvað sé á borðum hennar. „Á Þorláksmessu er þetta mjög fjölbreytt en á jóladag er ég alltaf með heilt hangikjötslæri sem ég sýð á aðfangadagsmorgun," segir Nanna sem reyndi lengi vel að auka fjölbreytnina á aðfangadag og breyta um aðalrétt á hverju ári.

„Það hefur mér ekki tekist undanfarin ár vegna þess að ég á erfitt með að neita barnabörnunum um andabringu sem er í uppáhaldi," segir Nanna. Í staðinn leikur hún sér með meðlætið. Nanna segist annars lítið jólabarn í sér. Jólatréð fer upp á Þorláksmessu og er skreytt af börnum sem koma í heimsókn. „Það er oft mjög ofskreytt og stundum bara skreytt öðru megin," segir hún hlæjandi en hefur gaman af.

Nýlega var gefin út matreiðslubókin Jólamatur Nönnu sem er tíunda eða tólfta matreiðslubók hennar. „Það fer eftir því hvernig er talið," segir hún brosandi. Þetta er þó ekki fyrsta bókin sem fjallar um jólamat.

„Ég vann fyrir nokkrum árum bók fyrir Nóatún sem fjallaði um jólamat og hún kveikti hugmyndina að þessari," segir hún en uppskriftirnar hefur hún flestar eldað sjálf í gegnum tíðina. Hér gefur hún uppskrift að þremur réttum sem hún segir alla fremur auðvelda. -sg


Silungstoppar.
Silungstoppar.
Silungstoppar
fyrir 6

250 g reyktur silungur (má nota lax)
12 basilíkublöð (fleiri ef þau eru lítil)
1 vorlaukur (grænu blöðin)
1 lítil lárpera eða ½ stærri, mjúk og þroskuð
50 g rjómaostur, mjúkur
pipar
salt
salatblöð
6 lítil form (eða kaffibollar)

Leggðu bút af plastfilmu yfir hvert form þannig að hún klæði það að innan. Skerðu silungsflakið í þunnar sneiðar á ská og raðaðu þeim í formin þannig að þær skarist aðeins; ef formin eru lítil er best að endarnir á sneiðunum standi dálítið upp fyrir brúnirnar. Raðaðu 2-3 basilíkublöðum í hvert form.

Skerðu afganginn af silungnum í litla bita. Saxaðu vorlaukinn smátt. Flysjaðu lárperuna og skerðu hana í litla bita. Hrærðu rjómaostinn með pipar og salti og blandaðu silungsafskurðinum og vorlauknum saman við. Blandaðu seinast lárperubitunum gætilega saman við.

Skiptu blöndunni í formin, sléttaðu yfirborðið og brjóttu endana á silungssneiðunum inn yfir fyllinguna. Breiddu plastfilmu yfir og láttu standa í kæli í a.m.k. eina klukkustund eða í allt að sólarhring. Settu salatblöð á litla diska. Hvolfdu silungstoppunum úr formunum og settu einn topp á hvern disk.


Pörusteik.
Pörusteik.
Pörusteik
fyrir 6-8

Það skiptir máli að undirbúa pöruna rétt, passa að skurðirnir séu djúpir og jafnir og paran vel þurr – gott er að láta loft leika um hana þar til steikin fer í ofninn. (Ef ekki er tími til að lofta pöruna vel grípa sumir til þess að nota hárblásara.) Svo þarf að nudda salti vel í hana.

Ég set steikina inn í vel heitan ofn. Þegar paran er farin að poppast lækka ég hitann og steiki áfram nokkuð lengi – það er lítil hætta á að kjötið þorni því fitan undir pörunni bráðnar niður í það og heldur því röku.

grísahryggur með pöru, um 2,5 kg
gróft salt, gjarna Maldon
pipar
negulnaglar
lárviðarlauf

Skerðu í pöruna með beittum hníf með 6-10 mm millibili. Ef búið var að skera hana þegar þú keyptir hrygginn skaltu samt fara ofan í rifurnar með hníf og gæta þess að skurðirnir séu nógu djúpir (nái í gegnum fitulagið að kjötinu). Þerraðu pöruna með eldhúspappír og nuddaðu hana og kjötið vel með salti og kryddaðu með pipar. Stingdu negulnöglum og hálfum lárviðarlaufum ofan í skurðina á víð og dreif.

Settu steikina í ofnskúffu eða stórt eldfast mót. Best er að paran liggi sem láréttust og því er gott að hafa hana í U- eða V-laga steikargrind, en einnig má stinga kartöflu eða samanvöðluðum álpappír undir steikina öðrum megin til að lyfta henni. Hitaðu ofninn í 225°C. Steiktu hrygginn í 25 mínútur, eða þar til paran er farin að poppast. Lækkaðu hitann þá í 160°C og helltu ½-1 lítra af sjóðandi vatni í ofnskúffuna. Steiktu kjötið í um 1½ klst., eða þar til kjarnahiti er um 68°C.

Ef paran er ekki nógu stökk má hækka hitann rösklega í lok steikingartímans eða kveikja jafnvel á grillinu en þá þarf að fylgjast vel með svo að paran brenni ekki. (Hér er miðað við grísahrygg á beini en steikin á myndinni er beinlaus steik, sem þarf þá skemmri tíma, e.t.v. aðeins 30-45 mínútur eftir að búið er að lækka hitann – ég mæli með kjöthitamæli.)


Hvítt súkkulaði-panna-cotta með berjasósu.
Hvítt súkkulaði-panna-cotta með berjasósu.
Hvítt súkkulaði-panna cotta
fyrir 6

½ l rjómi
4 msk. sykur
½ vanillustöng
3 matarlímsblöð
100 g hvítt súkkulaði

Settu rjóma og sykur í pott. Kljúfðu vanillustöngina eftir endilöngu, skafðu kornin úr henni og settu bæði þau og stöngina út í. Hitaðu rólega að suðu og láttu malla í um 10 mínútur við mjög vægan hita. Leggðu á meðan matarlímið í bleyti í kalt vatn.

Brjóttu súkkulaðið í bita og settu þá í skál. Taktu pottinn af hitanum, kreistu vatnið úr matarlíminu og hrærðu því saman við, og helltu svo öllu saman í gegnum sigti yfir súkkulaðið. Hrærðu þar til súkkulaðið er bráðið. Helltu blöndunni í 6 lítil form eða bolla og kældu í nokkrar klukkustundir, eða þar til búðingarnir hafa stífnað alveg. Losaðu þá úr formunum og hvolfdu á diska. Berðu fram með ferskum berjum eða berjasósu.


Berjasósa

200 g ber, t.d. hrútaber eða bláber
75 ml hvítvín eða eplasíder (eða bara vatn og svolítill sítrónusafi)
2 msk. sykur, eða eftir smekk
1 msk. ljóst síróp

Settu allt saman í pott og hitaðu það. Hrærðu öðru hverju þar til berin eru orðin mjúk. Settu sósuna í matvinnsluvél eða blandara og maukaðu hana. Láttu hana svo kólna.

Fleiri fréttir - Matur

Matur 18. maí. 2012 15:15

Helgarmaturinn - Nautalundir að hætti Nínu Bjarkar

Nína Björk Gunnarsdóttir ljósmyndari býr í Lúxemborg með fjölskyldu sinni. Hún nýtur þess ...  

Meira
Matur 11. maí. 2012 15:00

Helgarmaturinn - Sumarlegar bollakökur ritstjóra

Lilja Katrín Gunnarsdóttir, ritstjóri Séð og heyrt og leikkona, eyðir ófáum stundum í eldh...  

Meira
Matur 04. maí. 2012 17:00

Nammigræðgi starfsfélaganna spillir oft góðu plani

Guðný Helga Herbertsdóttir, upplýsingafulltrúi Íslandsbanka leggur mikið upp úr góðri heil...  

Meira
Matur 04. maí. 2012 15:00

Helgarmaturinn - Sumarsalöt Brynju Nordqvist

Það er ekki hægt að neita því að mataræðið léttist oft á sumrin í takt við léttari lund og...  

Meira
Matur 27. apr. 2012 14:00

Helgarmaturinn - Prótínvefja að hætti Hönnu Kristínar

Hanna Kristín Didriksen setur heilsuna í forgang og vandar hvað hún setur ofan í kroppinn....  

Meira
Matur 20. apr. 2012 12:45

Helgarmaturinn - Völundur Snær með grilluppskrift

Völundur Snær sjónvarpskokkur deilir með Lífinu, aukablaði Fréttablaðsins í dag fyrstu gri...  

Meira
Matur 17. apr. 2012 09:32

Með matreiðsluþátt á BBC

"Það er frábært að BBC sé að sýna þættina og þátturinn hefur fengið mikla dreifingu fyrir ...  

Meira
Matur 13. apr. 2012 11:00

Helgarmatur Loga Geirssonar

"Uppáhaldið mitt er þessi uppskrift sem ég og konan eldum saman um helgar,“ segir Lo...  

Meira
Matur 05. apr. 2012 11:00

Lúxus hafragrautur - Bestur á morgnana eða milli mála

"Hafragrauturinn er mitt uppáhald og er fastur liður á nánast hverjum degi,“ segir E...  

Meira
Matur 02. apr. 2012 10:00

Borðað með puttunum á eþíópískum veitingastað

"Ég flutti til Íslands árið 2000 og mig langaði alltaf að opna eþíópískan veitingastað og ...  

Meira
Matur 23. mar. 2012 14:00

Ungfrú Ísland opnar matardagbókina

Skagamærin Sigrún Eva Ármannsdóttir, 19 ára, ungfrú Ísland 2011, gaf sér tíma til að skrif...  

Meira
Matur 23. mar. 2012 12:00

Helgarmaturinn - dásamlegur eftirréttur

Lára Berglind Helgadóttir og eiginmaður hennar, Andrés Guðmundsson, eigendur Skólahreysti ...  

Meira
Matur 16. mar. 2012 11:30

Helgarmaturinn - Grillaður humar

Þegar fyrrum þulan og íslenskufræðingurinn, Anna Rún Frímannsdóttir vill dekra við fjölsky...  

Meira
Matur 04. mar. 2012 10:00

Beint úr eldhúsinu

Þrír erlendir kokkar keppa í dag í Hörpu um titilinn kokkur ársins á hátíðinni Food and Fu...  

Meira
Matur 17. feb. 2012 15:30

Helgarmaturinn

Rakel Sif Sigurðardóttir, nær­ingar- og heilsuráðgjafi, heldur úti dásamlegri síðu á Face­...  

Meira
Matur 11. feb. 2012 10:00

Helgaruppskrift Helgu Möller

Helga Möller söngkona segist jafnvel elda helgarmatinn á mánudögum sökum óreglulegs vinnut...  

Meira
Matur 13. jan. 2012 19:27

Nýtt ár - breytt mataræði

Ef þú ert ein(n) af þeim sem ætlar að bæta mataræðið núna eftir hátíðirnar, þá gæti þessi ...  

Meira
Matur 21. des. 2011 16:08

Aðventukræsingar Rósu: Girnilegir eftirréttir um jólin

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að súkkulaðifreistingu og bökuðum, fylltum e...  

Meira
Matur 15. des. 2011 12:47

Eldum saman hlýtur hin eftirsóttu Gourmand-verðlaun

Matreiðslubókin Eldum saman eftir Guðmund Finnbogason var á dögunum valin besta barna- og ...  

Meira
Matur 14. des. 2011 11:00

Hátíð að hætti Nönnu: Silungstoppar, pörusteik og panna-cotta

Nanna Rögnvaldardóttir matgæðingur eldar alltaf hangikjöt á jóladag. Á aðfangadag eru anda...  

Meira
Matur 13. des. 2011 20:00

Gæsalifur og Galette de roi

Björg Björnsdóttir, verkefnisstjóri hjá Barnaheill – Save the Children á Íslandi, bj...  

Meira
Matur 13. des. 2011 09:44

Aðventukræsingar Rósu: Chillísúkkulaði og brauðkollur

Rósa Guðbjarts eldar hér og gefur uppskriftir að heitu chillísúkkulaði, brauðkollum með fy...  

Meira
Matur 11. des. 2011 10:00

Vogaskóla frómas

Uppskrift að ananasfrómas sem fjölskylda Birnu Jónsdóttur hjúkrunarfræðings gæðir sér á hv...  

Meira
Matur 10. des. 2011 11:00

Tvær gerðir af gómsætu smurbrauði

Smurbrauð með rækjum og smurbrauð með reyktum laxi, kavíar og avókadómauki...  

Meira
Matur 05. des. 2011 18:53

Hráfæðis-piparmyntusúkkulaði

Hér er gómsæt uppskrift Sólveigar Eiríksdóttur á hráfæðis-piparmyntusúkkulaði sem hún elda...  

Meira
Matur 25. nóv. 2011 11:15

Eldar og bakar á hverjum degi

„Ég veit fátt betra en að borða, það er mikið áhugamál hjá mér,“ segir Eva Lau...  

Meira
Matur 12. nóv. 2011 20:00

Harry‘s vekur athygli

Filippseyski veitingastaðurinn Harry‘s er umfjöllunarefni blaðamanns The Philippine ...  

Meira
Matur 11. nóv. 2011 13:00

Matardekur Hrefnu

Það er ekki í kot vísað að leggja sér góðgæti Hrefnu Rósu Sætran til munns, en hún kætir m...  

Meira
Matur 08. nóv. 2011 16:51

Smoothie að hætti Ebbu

Ebba Guðný Guðmundsdóttir er nýkomin heim frá Frankfurt þar sem hún náði að selja bókina s...  

Meira
Matur 18. okt. 2011 14:00

Haustkræsingar Rósu: Rauðrófurisotto

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsi...  

Meira
Matur 07. okt. 2011 20:00

Haustkræsingar Rósu: Brokkolísúpa með osti

Matarinnslag úr Íslandi í dag þar sem Rósa Guðbjartsdóttir eldar ómótstæðilegar haustkræsi...  

Meira
Matur 23. sep. 2011 11:00

Heimilismatur í sparibúningi

Nýir eigendur tóku við Café Aroma í Hafnarfirði fyrir ári og hefur staðurinn fest sig vel ...  

Meira
Matur 02. sep. 2011 11:00

Líka fyrir augað

Tuna Dís Metya er af úkraínskum og tyrkneskum ættum, fædd og uppalin í Bordeaux í Frakklan...  

Meira
Matur 24. ágú. 2011 10:00

Eldað í Vesturheimi

Rómantík ræður ríkjum hjá ungum, íslenskum hjónum í litlu koti í New York, en þar stendur ...  

Meira
Matur 23. ágú. 2011 21:00

Lífrænn markaður á Lækjartorgi

Frá miðjum júlí hefur Ari Hultquist boðið vegfarendum að kaupa glænýtt lífrænt ræktað græn...  

Meira
Matur 23. ágú. 2011 14:30

Þurrkuðu eplin mikið sælgæti

Þorsteinn Sigmundsson, bóndi í Elliðahvammi, ræktar epli og býr til eplasafa og eplasælgæt...  

Meira
Matur 05. júl. 2011 12:30

Himneskar karamellukökur Rikku

Friðrika Hjördís Geirsdóttir er landsmönnum að góðu kunn, ekki síst fyrir skrif og þætti u...  

Meira
Tarot
Hugsaðu þér, eða skrifaðu spurningu og dragðu þér spádómsspil
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið

Nýjast á Vísi

Fréttir eftir mánuði

Þú ert hér: Forsíða / Lífið - Yfir / Matur / Hátíð að hætti Nönnu: Silungstoppar, pörusteik og panna-cotta