Hart deilt á saksóknara í Kompáss - árásarmálinu 25. nóvember 2008 21:31
Verjandi Benjamíns Þórs Þorgrímssonar, sem ákærður hefur verið fyrir að ganga í skrokk á Ragnari Magnússyni, eins og frægt varð þegar fréttaskýringaþátturinn Kompás náði atvikinu á myndband, sakar lögreglu um að hafa klúðrað ákærunni á hendur skjólstæðingi sínum. Hinn málsaðilinn, Ragnar Magnússon, tekur í svipaðan streng og segir að lögregla hafi týnt ákærum sem hann lagði fram gegn Benjamíni í kjölfarið á því að Benjamín réðst að honum. Kastljósið fjallaði um málið í kvöld og þar kom fram að hótanir Benjamíns í garð Ragnars muni aldrei fara fyrir dóm. Lögregla gaf út tvær ákærur í málinu sama daginn en í þeirri fyrri er ekkert minnst á hótanir heldur aðeins talað um líkamsárás. Verjandi Benjamíns gerði athugasemdir við þetta og hefur verið ákveðið að fyrr ákæran standi. Ragnar Magnússon, sem Benjamín réðst á, átelur lögreglu einnig fyrir mistök í rannsókninni. Hann segist hafa lagt fram fleiri kærur á hendur Benjamíni sem hvergi sé að finna í ákærunni. Jón H.B. Snorrason, saksóknarinn í málinu sagði í samtali við Kastljósið að umdeilanlegt sé hvort nauðsynlegt sé að ákæra fyrir hótanirnar enda komi þær skýrt fram í myndbandinu. Þessu vísar hæstaréttarlögmaðurinn Brynjar Níelsson hins vegar á bug og segir fráleitt. Ef ekki sé ákært fyrir hótanir sé ekki hægt að dæma manninn fyrir hótanir.
Mest lesið Lýsa uppgötvuninni sem gríðarstórum „hvalakirkjugarði“ Erlent Eldur í Árbænum Innlent Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Innlent Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Innlent Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Innlent Finnur ekki fyrir sársauka Innlent Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Innlent Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Innlent Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa Innlent Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Innlent Fleiri fréttir Fara fram á að fjármálaáætlunin sé endurreiknuð Eldur í Árbænum Vill ekki ganga svo langt að kalla þetta klofningu flokksins Sjálftakan „til háborinnar skammar“ Eldfim staða, sorglegt áhugaleysi og ráðgáta Vísað út úr flugvél: „Þetta er bara ömurlegt“ Hafnar kreddum um verðbólguna Stefnir í uppbótartíma Starfsáætlun Alþingis kippt úr sambandi Tóku þátt í að uppræta rafmyntaþvætti sem teygði anga til Íslands Hótaði að beita skotvopni Finnur ekki fyrir sársauka Árásarmaður Tinnu fær ekki áheyrn: Taldi brotið á mannréttindum minnihlutahópa MDE vísar frá tveimur málum gegn Íslandi Flekahreyfingar innan Samfylkingar Rýmdu skrifstofur Hagkaupa vegna hótunar Ráðstöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu Brúin yfir Djúpafjörð boðin út Hermann Nökkvi verður aðstoðarmaður Vilhjálms Árnasonar Sorglegt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann Leggja til að mestu gljúfurkerfi landsgrunnsins verði vernduð „Ljóst að deilunni er ekki lokið“ Bein útsending: Funda um verðbólgu, verðlag og laun Ólga í Samfylkingu: „Þessi ólög eru ekki í okkar nafni sett“ Færa umferð af norður- á suðurakbraut á Breiðholtsbraut Mættu með stungusár á lögreglustöðina Veglegt veiðihús rís fyrir silungasvæðið Þjónusta þjarka og falskra aðganga gengur kaupum og sölu Opnar sig um gróf ummæli um hjónabandið Sjá meira