Innlent

Harmar niðurstöðu Hæstaréttar

JMG skrifar
Guðmundur Ármann Pétursson harmar niðurstöðu Hæstaréttar í Sólhemamálinu.
Guðmundur Ármann Pétursson harmar niðurstöðu Hæstaréttar í Sólhemamálinu.
Framkvæmdastjóri Sólheima harmar niðurstöðu Hæstaréttar í gær um að ríkinu hafi verið heimilt að skerða framlög til Sólheima í fjárlögum ársins 2009. Hann segir Sólheima hafa uppfyllt þjónustusamning sinn við ríkið þó hann hafi runnið út og talið að stjórnvöldum væri skylt að gera slíkt hið sama.

Hæstiréttur komst að þeirri niðurstöðu í gær að Alþingi hafi verið heimilt að skerða fjárframlög til Sólheima í fjárlögum 2009 jafnvel þótt félagsmálaráðherra hafi verið búinn að gera þjónustusamning við stofnunina um tiltekna upphæð til ársloka 2008 en í fjárlögunum var sú upphæð skert um fjögur prósent. Hæstiréttur sneri þar með við dómi Héraðsdóms og taldi Sólheima ekki geta byggt rétt sinn á útrunnum samningi.

Guðmundur Ármann Pétursson framkvæmdastjóri Sólheima segir dóminn vera vonbrigði sérstaklega í ljósi þess að Hérðsdómur hafi rökstutt sína afstöðu vel að hans mati og áfram hafi verið unnið eftir samningnum þó hann hafi verið útrunninn. „Við höfðum óskað eftir framlengingu, ríkisvaldið eða ráðuneytið hafði hunsað að svara því og ganga til viðræðna eins og við höfðum óskað eftir, við veittum þjónustuna og um það var beðið og engin breyting þar á þannig að það dapra í þessu er að öðrum aðilanum bera að standa við samninginn en hinum ekki," segir hann.

Hann segir fleiri aðila vera í sömu sporum með útrunna samninga sem ríkið hefur dregið lappirnar við að endurnýja en krefst þess samt að þjónusta sé áfram veitt. „Með þessu er í rauninni sagt að ríkið hafi frjálsar hendur og sé óbundið af samningum og þetta er óheppilegt, það varð að láta reyna á málið og ég tel okkur hafa gert rétt í málinu að leita réttar okkar. Þetta er vonbrigði en þetta er niðustaðan og lífið heldur áfram," segir Guðmundur Ármann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×