Innlent

Harður árekstur á Kringlumýrarbraut

Samúel Karl Ólason skrifar
Vísir/Anton
Harður árekstur varð á Kringlumýrarbraut við Borgartún laust fyrir klukkan tvö í dag, þar sem bíl var ekið í hliðina á öðrum. Lögregla og sjúkralið voru kallað á vettvang samkvæmt upplýsingum frá lögreglu.

Annar bíllinn var fluttur af slysstaðnum með dráttarbíl.

Meiðsli urðu minniháttar í árekstrinum en lögreglan ók ökumanni öðrum bílsins á slysadeild til aðhlynningar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×