Körfubolti

Harden hafði betur gegn LeBron | Myndbönd

LeBron fann sig ekki á vítalínunni.
LeBron fann sig ekki á vítalínunni. vísir/getty
Houston Rockets, með James Harden í broddi fylkingar, minnti hraustlega á sig í NBA-deildinni með því að vinna sterkan sigur á Cleveland Cavaliers, 105-103, eftir framlengdan leik.

Þarna mættust tveir af bestu mönnum deildarinnar í vetur - Harden og LeBron James - og Harden hafði betur. Hann skoraði 33 stig á meðan James klúðraði tveim vítum í lok framlengingarinnar. Hann hitti reyndar aðeins af 3 af 11 vítum sínum í leiknum.

„Það eru engar afsakanir. Ég klúðraði þessu. Ég hefði getað bjargað leiknum en ég brást félögum mínum," sagði LeBron svekktur eftur leik.

Úrslit:

Chicago-LA CLippers  86-96

Houston-Cleveland  105-103

Sacramento-Portland  99-110

Boston-Golden State  101-106

Indiana-Philadelphia  94-74

Orlando-Charlotte  83-98

LA Lakers-Oklahoma  101-108

Denver-New Orleans  92-99

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×