Handbolti

Hansen með 14 mörk í enn einum sigri PSG

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hansen hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og skorað grimmt.
Hansen hefur byrjað tímabilið af miklum krafti og skorað grimmt. vísir/getty
Paris Saint Germain hélt sigurgöngu sinni í frönsku úrvalsdeildinni í handbolta áfram með átta marka sigri, 35-27, á Chambéry á heimavelli í kvöld.

PSG hefur unnið alla fimm leiki sína og situr á toppi deildarinnar með 10 stig, tveimur stigum á undan Montpellier, Saint Raphael og Cesson Rennes sem raða sér í næstu sæti.

Mikkel Hansen fór fyrir liði PSG í kvöld og skoraði 14 mörk úr aðeins 15 skotum. Hansen skoraði fimm mörk úr sex skotum utan af velli og nýtti öll níu vítaköst sín.

Frönsku landsliðsmennirnir Luc Abalo og Xavier Barachet skoruðu fimm mörk hvor fyrir PSG en Róbert Gunnarsson komst ekki á blað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×