MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 15:15

Fimleikafólk á smáþjóðaleikana

SPORT

Hanna Birna: Borgarbúar greiða fyrir stóraukinn rekstrarkostnað

Vísir Viðskipti innlent 30. apríl 2012 16:38
Hanna Birna: Borgarbúar greiða fyrir stóraukinn rekstrarkostnað
Hanna Birna Kristjánsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir að niðurstöður ársreiknings borgarinnar sem lagður var fram í dag staðfesti mun lakari afkomu en áætlanir hafi gert ráð fyrir, „ónógt aðhald, ófullnægjandi árangur í hagræðingu og almennt ranga forgangsröðun í þágu kerfisins en á kostnað fólksins."

Helstu niðurstöður ársreikningsins eru að rekstrarniðurstaða A-hluta er neikvæð um 2.808 mkr en áætlun gerði ráð fyrir að hún yrði jákvæð um 66 mkr. Niðurstaðan er því verri en gert var ráð fyrir, sem nemur 2.874 mkr. Sama þróun er í samstæðunni, A- og B- hluta, en þar er rekstrarniðurstaðan neikvæð um 4.675 mkr en átti að vera jákvæð um 3.400 mkr.

Hanna Birna segir ársreikninginn endurspegla ár af mörgum röngum ákvörðunum, hversu illa áætlanir meirihlutans standast og hversu lítill árangur hefur náðst í hagræðingu. Hún bendir á að skatttekjur borgarinnar aukist um 16% á milli ára, sem þýði að ætla megi að borgarbúar séu að greiða rúmlega 3.000 mkr meira í skatta en í fyrra. Á sama tíma aukist rekstarkostnaður verulega á milli ára, samhliða því sem hann sé mun hærri en áætlanir gerðu ráð fyrir.

,,Þannig vex kerfið á kostnað borgarbúa sem þurfa einmitt á því að halda að greiðslubyrði þeirra minnki. Borgarbúar líða fyrir það stefnu- og alvöruleysi sem ríkt hefur við stjórn borgarinnar á þessu kjörtímabili. Til að mæta þessum vexti í kerfinu seilist meirihlutinn stöðugt dýpra í vasa borgarbúa og lætur þá greiða fyrir eigið stjórnleysi með stóraukinni skattheimtu," segir Hanna Birna í tilkynningu. Hún bætir því við að ársreikningurinn beri þannig ekki með sér góðar fréttir fyrir borgarbúa en staðfesti þá miklu gagnrýni sem verið hefur á fjármálastjórn meirihlutans.

Hanna Birna segir þennan viðsnúning til hins verra í rekstri borgarinnar og það hversu illa allar áætlanir standist, krefjast þess að meirihlutinn tileinki sér önnur og betri vinnubrögð við fjárhagsáætlunagerðina. ,,Borgarbúar eru einfaldlega að gjalda fyrir ranga forgangsröðun og vond vinnubrögð þessa meirihluta, samhliða því sem ársreikningurinn staðfestir að meintar hagræðingaraðgerðir meirihlutans skila ekki árangri, enda unnar án nokkrus samráðs við íbúa, starfsfólk eða kjörna fulltúa."

Þá bendir hún á að það sé ekki eingöngu rekstrarkostnaður sem fari úr böndunum heldur hefur skuldsetning borgarinnar aukist um 56% á tveimur árum. „Uppgreiðslutími lána fer hækkandi en árið 2009 hefði það tekið borgina 2 ár að greiða niður skuldir sínar en í lok árs 2011 tekur það borgina 5 ár að greiða niður skuldir. Þetta er áhyggjuefni þar sem að aðhald í rekstri borgarinnar er lítið og því gæti skuldaaukning orðið töluverð á næstu árum."

„Umdeildar hagræðingaraðgerðir í grunnskólum og leikskólum borgarinnar eru ekki að skila fjárhagslegum ávinningi. Þetta sést best þegar litið er til þess að í upphaflegri áætlun var gert ráð fyrir rekstrarkosnaði sem næmi 18,3 milljarði en raunkostnaður varð 19,9 milljarður eða 9% aukning á kostnaði. Þetta staðfestir að það sem meirihlutinn hefur boðað sem helstu hagræðingaraðgerðir sínar hafa engum árangri skilað."

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Viðskipti innlent 22. maí 2013 15:10

Niðurstaða ESA um gengislánin kemur ekki á óvart

Guðjón Rúnarsson framkvæmdastjóri Samtaka fjármálafyrirtækja segir að rökstutt álit ESA (Eftirlitsstofnunnar EFTA) um gengislán komi ekki á óvart. Það hafi verið viðbúið að slíkt álit kæmi fram í ljós... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 14:27

Capacent fær vottun hjá IBM

Bandaríska fyrirtækið IBM, sem er leiðandi á sviði viðskiptahugbúnaðar, hefur gefið Capacent vottun sem IBM Premium Business Partner, en það er æðsta vottun sem samstarfsaðilar IBM geta hlotið. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 14:22

Engar líkur á heimild til erlendra fjárfestinga næstu 5 árin

Forsvarsmenn lífeyrissjóðanna meta nær engar líkur á því að þeim verði veitt heimild til erlendra nýfjárfestinga á næstu fimm árum. Þeir eru aðeins bjartsýnni á að heimildin verði veitt á næstu tíu ár... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:37

ESA: Algert bann við gengislánum er brot á EES samningum

Ísland hefur gerst brotlegt við EES samninginn með því að leggja algert bann við veitingu gengistryggðra lána í íslenskum krónum. Þetta er niðurstaða rökstudds álits Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA) frá ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:26

Erlendir ferðamenn sækja í íslensk sumarhús

Mikil aukning hefur orðið á bókunum sumarhúsa hjá erlendum ferðamönnum. 60% viðskiptavina sprotafyrirtækisins Búngaló, sem aðstoðar íslenskar fjölskyldur við að leigja út sumarhús sín, eru erlendir. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 13:04

Erla ráðin sem viðskiptastjóri hjá Brandenburg

Erla Tryggvadóttir hefur verið ráðin í starf viðskiptastjóra hjá auglýsingastofunni Brandenburg. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 12:45

Ekki orð um Íbúðalánasjóð

Ekki er minnst einu orði á Íbúðalánasjóð í stjórnarsáttmála Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokksins sem kynntur var fyrir hádegi. Í ritinu fjármálastöðugleiki, sem Seðlabankinn gefur út tvisvar á ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 11:18

FÍB: Álagning á bensíni hefur aukist

Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu bensínlítrann um röskar fimm krónur og dísillítrann um röskar fjórar krónur í gær. Álagning á bensínlítrann er orðin þremur krónum hærri frá áramótum, en á sama tímabili... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 11:02

Yfir 15.000 Íslendingar með Alfreð

Alfreð appið fór í loftið 31. janúar sl. og hefur slegið í gegn hjá snjallsímanotendum því núna í maí hafa rúmlega 15 þúsund Íslendingar sótt sér appið og yfir 100 fyrirtæki nýtt sér þessa nýju leið í... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 10:22

Ferðaþjónustan fagnar stækkun á svæði fyrir hvalaskoðun

Samtök ferðaþjónustunnar fagna ákvörðun atvinnu- og nýsköpunarráðherra að stækka það svæði sem hvalaskoðunarfyrirtækin hafa til umráða á Faxaflóa en samtökin hafa lagt mikla áherslu á að banna allar h... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 09:10

Aflaverðmætið stóð nær í stað milli ára í apríl

Aflaverðmæti íslenskra skipa nam 30,2 milljarði króna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2013 samanborið við 30,3 milljarða á sama tímabili 2012. Aflaverðmæti hefur því dregist saman um rúmlega 111 millj... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 09:06

Hagstofan mælir 6,6% atvinnuleysi í apríl

Samkvæmt Vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands voru í apríl 2013 að jafnaði 186.800 manns á vinnumarkaði. Af þeim voru 174.400 starfandi og 12.300 án vinnu og í atvinnuleit. Atvinnuþátttaka mældist 82... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 08:38

IFS spáir því að verðbólgan standi í stað

Verðbólguspá IFS greiningar fyrir maí hljóðar upp á 0,1% lækkun verðlags frá fyrri mánuði. Gangi spáin eftir helst tólf mánaða verðbólga óbreytt 3,3%. Verðbólga undanfarna þrjá mánuði á ársgrundvelli ... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 08:06

Björgólfur Thor hefur grætt 18 milljarða á Actavis

Ekkert lát er á hækkunum á gengi hluta í Actavis á markaðinum vestan hafs. Gengið hækkaði um 2,4% í gærkvöldi og er komið yfir 130 dollara á hlut. Þetta þýðir að gengishagnaður Björgólfs Thors Björgól... Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 07:30

Vextir verða óbreyttir

Vextir verða óbreyttir út næsta mánuð. Þetta kemur fram í tilkynningu á vefsíðu Seðlabankans. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 06:58

Óútskýrðar olíu- og bensínhækkanir

Stóru olíufélögin þrjú hækkuðu bensínlítrann um röskar fimm krónur og dísillítrann um röskar fjórar krónur í gær. Hækkun nemur rúmum 2%. Meira
Viðskipti innlent 22. maí 2013 06:00

Landsbankamenn krafðir um 1,2 milljarða

Slitastjórn Landsbankans hefur stefnt þremur fyrrverandi starfsmönnum bankans til að greiða þrotabúinu samtals 1,2 milljarða króna vegna hlutabréfakaupa árin 2007 og 2008. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 14:29

Kynntu sér kjarasamninga á hinum Norðurlöndunum

Vinnuhópur aðila vinnumarkaðarins kynnti í dag skýrslu um vinnumarkað og skipulag kjarasamninga í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 14:10

Forstjóri Össurar kaupir í félaginu

Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf. festi kaup á 40.000 hlutum í félaginu í dag. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 13:28

Flugfargjöld til London lækka í undanfara aðalferðamannatímans

Fargjöld til höfuðborgar Bretlands hafa farið lækkandi undanfarið þó aðalferðamannatíminn sé handan við hornið. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 11:03

Mikið fjör á fasteignamarkaði borgarinnar

Alls var þinglýst 133 kaupsamningum um fasteignir á höfuðborgarsvæðinu í síðustu viku. Þetta er töluvert meiri fjöldi en nemur vikumeðaltalinu undanfarna þrjá mánuði sem er 105 samningar. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 10:25

Spá því að verðbólgan haldist óbreytt í 3,3% í maí

Greining Íslandsbanka spáir því að vísitala neysluverðs (VNV) lækki um 0,1% í maí frá mánuðinum á undan. Gengi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga verða óbreytt í 3,3%, en minni hefur verðbólga ekki v... Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 09:48

Stefnir kaupir í VÍS fyrir 360 milljónir

Stefnir hf. hefur keypt 36 milljón hluti í VÍS. Miðað við gengi hlutana í augnablikinu er um 360 milljóna kr. viðskipti að ræða. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 09:38

VÍB styrkir sýninguna Dansar í Eldborg

VÍB, eignastýringarþjónusta Íslandsbanka, verður aðalstyrktaraðili sýningarinnar Dansar í Eldborg: Igor Stravinsky í 100 ár sem sýnd verður 24. og 25. maí á Listahátíð í Reykjavík. Meira
Viðskipti innlent 21. maí 2013 09:17

Styrking á gengi krónunnar lækkar byggingarkostnað

Vísitala byggingarkostnaðar reiknuð um miðjan maí 2013 er 118,2 stig sem er lækkun um 0,3% frá fyrri mánuði. Verð á innfluttu efni lækkaði um 1% sem skýrir lækkun vísitölunnar. Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Viðskipti / Viðskipti innlent / Hanna Birna: Borgarbúar greiða fyrir stóraukinn rekstrarkostnað
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000