Innlent

Handtekinn vegna líkamsárásar

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Nokkrir voru handteknir í nótt grunaðir um fíkniefnabrot.
Nokkrir voru handteknir í nótt grunaðir um fíkniefnabrot. Vísir/Kolbeinn Tumi
Tvær líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar á höfuðborgarborgarsvæðinu í nótt.

Í öðru tilfellinu var maður handtekinn og gistir hann fangageymslu þar til tekin verður af honum skýrsla. Í hinu tilfellinu er árásarmaðurinn óþekktur en málið er í rannsókn.

Þá voru nokkrir handteknir grunaðir um fíkniefnabrot og nokkrir til viðbótar stöðvaðir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna eða áfengis.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×