Fótbolti

Hamsik tryggði Napoli stig á Vodafone-vellinum

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hamsik jafnaði metin átta mínútum fyrir leikslok.
Hamsik jafnaði metin átta mínútum fyrir leikslok. Vísir/Getty
Marek Hamsik, fyrirliði Napoli, tryggði sínum mönnum stig gegn Besiktas á Vodafone-vellinum í Istanbúl í B-riðli Meistaradeildar Evrópu í kvöld.

Hamsik jafnaði metin í 1-1 með góðu skoti á 82. mínútu, aðeins fjórum mínútum eftir að Ricardo Quaresma kom Tyrkjunum yfir með marki úr vítaspyrnu.

Þegar þessi lið mættust í síðustu umferð riðlakeppninnar vann Besiktas ævintýralegan 2-3 sigur í Napoli.

Ítalarnir eru í efsta sæti riðilsins með sjö stig, einu stigi á undan Besiktas.

Í hinum leik riðilsins mætast Benfica og Dynamo Kiev á Ljósvangi í Lissabon.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×