MIÐVIKUDAGUR 22. MAÍ NÝJAST 03:00

Slegist í úthverfi Stokkhólms

FRÉTTIR

Hamingjan sanna!

Fréttablaðið Fastir pennar 13. mars 2012 06:00
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson
Teitur Guðmundsson skrifar:
Flest erum við að leita að hamingju, vellíðan og jákvæðu hugarfari og hafa ýmsar rannsóknir verið gerðar í gegnum tíðina til að reyna að varpa ljósi á það hvernig við öðlumst hana. Við sem erum eldri en tvævetur vitum að það kemur margt til og engin töfralausn fyrir þá sem ekki njóta lífsins.

Þar sem hamingjan er skilgreind sem ástand eða líðan með jákvæðum tilfinningum sem geta verið frá ánægju til ofsagleði og er samsafn líffræðilegra, samfélagslegra, trúarlegra og heimspekilegra þátta gefur auga leið að við eigum erfitt með þetta hugtak. Þá er augljóst að einstaklingar hafa mismunandi skilning og upplifun og því verður öll umræða um hamingju mjög flókin og raunverulega óskiljanleg.

Þekkt er í læknavísindum að ýmsir sjúkdómar hafa áhrif á líðan, þeirra þekktastir eru þunglyndi og kvíði, streita getur einnig haft mikil áhrif en birtingarmynd hennar er okkur stundum hulin. Samskipti okkar, félagsleg staða, fjárhagslegt sjálfstæði og ekki síst fjölskylda, vinir og kunningjar leika ríkt hlutverk í því hvernig okkur líður. Þá má ekki gleyma vinnu, skóla og öðrum slíkum þáttum.

Tökum nokkur dæmi um það hvernig við getum sjálf haft áhrif á líðan okkar;

Hlustum á tónlist sem lætur okkur líða vel og tengist jákvæðum minningum. Reynum að lesa bækur og draga úr notkun sjónvarps og tölva. Fáum nægan svefn. Borðum feitan fisk og hnetur sem eru ríkar af omega 3-fitusýrum og vinna gegn hjarta og æðasjúkdómum.

Borðaðu flókin kolvetnasambönd eins og gróft brauð, pasta og haframjöl en þau auka vellíðunarefnið serotonín í heila- og taugafrumum. Þá hafa þau jákvæð áhrif á blóðsykursstjórnun.

Appelsínur og sítrusávextir eru ríkir af C-vítamíni, draga úr streituhormónum og styrkja ónæmiskerfið á sama tíma. Þá er gott að muna eftir spínati sem er ríkt af magnesíumi og járni auk A-vítamíns.

Ég gæti auðvitað haldið áfram endalaust að benda ykkur á heilsusamlegt fæði en ekki má gleyma hreyfingunni sem er ekki síður mikilvæg og verður að vera reglubundin. Rannsóknir hafa sýnt að æfingar sem reyna á hjartað í 30-40 mínútur í einu 3-4 x í viku auka losun endorfína sem kalla mætti fíkniefni líkamans, draga úr blóðþrýstingi, auka brennslu og á þennan hátt vellíðan.

Gefum okkur tíma til samveru og reynum eftir fremsta megni að draga úr neikvæðri streitu, hlæjum saman og förum út á meðal fólks ef þess er nokkur kostur. Vísindamenn í BNA sýndu fram á það að hitta ókunnuga, jafnvel bara stutta stund, myndi auka vellíðan einstaklinga til muna.

Gott skap er smitandi og reyndu að vera jákvæð/ur og sjá björtu hliðarnar, jafnvel þótt það geti reynst afar erfitt á stundum. Þetta á sérstaklega við um yngra fólk, því sýnt hefur verið fram á það að eldri einstaklingar dragi fremur fram jákvæðar hliðar lífsins en þeir yngri.

Hættu að reykja, þú ert bara önug/ur á meðan á því stendur, í kjölfarið líður þér betur en áður og hefur ekki samviskubit yfir svo heimskulegri iðju sem reykingar eru.

Notaðu áfengi í hófi og ekki ánetjast fíkniefnum!

Láttu fylgjast með almennri heilsu þinni og stundaðu þær forvarnir sem mögulegar eru í baráttunni við sjúkdóma, mein og hrörnun.

Þetta hljómar allt mjög einfalt svona á blaði, en vittu til, þú ræður því sjálfur hvernig þér líður og hamingjan sanna ef það er ekki mikils virði!

Deila
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Fastir pennar 21. maí 2013 09:30

Genin mín, genin þín og "tæknilæknisfræði“

Mikið hefur verið rætt um gen og áhrif þeirra á myndun sjúkdóma undanfarna daga í fjölmiðlum og sitt sýnist hverjum. Meira
Fastir pennar 21. maí 2013 07:00

Transfólk kemur út úr skápnum

Konum á Íslandi fjölgaði um fimm í síðustu viku, en körlunum fækkaði að sama skapi. Þannig orðaði sænski skurðlæknirinn Gunnar Kratz það er rætt var við hann í úttekt í helgarblaði Fréttablaðsins. Kra... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 12:00

Vandinn við hvíta lygi

Ekki er beinlínis hægt að segja að menn hafi skrökvað í kosningabaráttunni um stöðu ríkissjóðs og yfirvofandi hættu á greiðsluþroti þjóðarbúsins vegna gjaldeyrisskorts. En það á við talsmenn fráfarand... Meira
Fastir pennar 18. maí 2013 06:00

300 ára gamlar kennsluaðferðir

Háskólaumhverfið eins og við þekkjum er um þrjú hundruð ára gamalt. Þótt prófessorar hafi fyrir löngu tekið upp á því að nota tæknina til að varpa upp glærum og festa hljóðnema við skyrtuflipana hefur... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 15:00

Selfoss og Maribo

Sumir vilja láta ríkið selja áfengi til að takmarka aðgengi fólks að því. Ég er ósammála en ég skil rökin. En í umræðunni má stundum heyra önnur rök: Að ríkiseinokun sé nauðsynleg til að tryggja gott ... Meira
Fastir pennar 17. maí 2013 11:01

Öflugri hópur, betri fréttir

Fréttastofur 365 miðla sameinast í eina. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Júróvísa

Jæja, það fer víst ekki framhjá neinum að í dag er haldinn hátíðlegur alþjóðlegur Eurovision-dagur um víða veröld og ósköp fátt sem flest okkar geta gert í því. Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 14:00

Tvær frjálsar hendur, slef og tunga

Mér hafa borist óvenju margar fyrirspurnir um munnmök undanfarið og þá sérstaklega um tott. Það er kannski ekki skrítið í ljósi þess hvernig munnmök eru stunduð í klámi og fólk svo reynir að leika slí... Meira
Fastir pennar 16. maí 2013 07:00

Þvingur, lím og stærðfræðijöfnur

Ein mesta meinsemd menntakerfis Íslendinga er hversu fáir nemendur velja starfs- og iðnnám. Félög atvinnurekanda hafa svo oft kallað á umbætur án þess að því hafi verið svarað að skömm er að. Meira
Fastir pennar 15. maí 2013 09:00

Stokka upp eða láta það springa?

Aðsókn í kennaranám hefur minnkað um helming. Fréttablaðið sagði frá því í gær að árið 2006 hefðu 419 manns sótt um að hefja kennaranám við Háskóla Íslands, en 203 í fyrra. Árið 2012 var aðeins 13 ums... Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:30

Blindur, brúnn og hrukkóttur

Nú þegar sumarið er komið bíðum við eftir sólinni sem yljar okkur og öllu öðru, hún glæðir gróðurinn lífi og það hleypur viss kátína í unga sem aldna. Meira
Fastir pennar 14. maí 2013 11:15

Ofbeldi gegn ófæddum börnum

Mæðradagurinn var á sunnudaginn með tilheyrandi yfirlýsingum á Facebook um hversu dásamlegar mæður fólk ætti almennt. Svo rammt kvað að fullyrðingunum um stórkostleika mæðranna að einhver benti á að þ... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Valfrelsi með humrinum

Viðbrögð við ummælum Áslaugar Örnu Sigurbjörnsdóttur, formanns Heimdallar, um bann við sunnudagsopnun vínbúða, hafa verið vægast sagt öfgakennd. Áslaug svaraði spurningu Fréttatímans og sagðist trúa a... Meira
Fastir pennar 13. maí 2013 07:00

Lækningar fremur en refsingar

Eiturlyf. Sjálft orðið er hlaðið sprengikrafti: ?eitur? er það sem skaðar okkur en ?lyf? er það sem bætir líðan okkar til líkama og sálar. Annað orðið vísar til eyðingar, hitt til lækninga. Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

Sumarbústaðir þjóðarinnar

Ég er nýkominn frá Kanaríeyjum. Á suðurhluta Tenerife, þar sem eitt sinn var bara eyðimörk, er nú ferðamannaparadís með alls konar veitingastöðum og hótelum. Allt byggt frá grunni og vissulega missmek... Meira
Fastir pennar 10. maí 2013 07:00

45.000 fleiri í hvalaskoðun

Í gær var fyrsta hrefnan drepin í Faxaflóa, rétt fyrir utan skoðunarlínuna svokölluðu. Í fyrra tókst að drepa fimmtíu og þrjú dýr og í ár ætla veiðimenn að gera enn betur. Þeir segja eftirspurnina mik... Meira
Fastir pennar 09. maí 2013 07:00

Sveitarfélögum fækkað um 62

Á Íslandi eru sjötíu og fjögur sveitarfélög. Þeim mætti fækka um sextíu og tvö samkvæmd tillögum svokallaðrar Verkefnastjórnar Samráðsvettvangs en þátttakendur í honum eru leiðtogar stjórnmálaflokka, ... Meira
Fastir pennar 08. maí 2013 07:00

Tækifæri í tollalækkun

Þegar fréttist af Bjarna Benediktssyni og Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni í Krónunni í Mosfellsbæ að kaupa inn fyrir stjórnarmyndunarviðræðurnar í sveitinni sendu Samtök verzlunar og þjónustu formönnunum... Meira
Fastir pennar 07. maí 2013 07:00

Neðrideildarleikur í Noregi

Dómarar í knattspyrnuleikjum meistaradeildar karla fá 156% hærri laun en þeir sem dæma leiki í efstu deild kvenna. Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Kaupum álfinn

Í dag hefst árleg álfasala SÁÁ og stendur út vikuna. SÁÁ eru félagasamtök sem reka sjúkrahúsið Vog og fjölda annarra meðferðarstofnana. Álfasalan er liður í að fjármagna barna- og fjölskyldudeild SÁÁ.... Meira
Fastir pennar 06. maí 2013 08:30

Lærum að leika okkur

Þegar maður horfir á enska sakamálamynd þátt í sjónvarpinu sem gerð er upp úr bók eftir Agöthu Christie er ánægjan ekki endilega fólgin í því að brjóta heilann um plottið – er það ekki alltaf un... Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Umtalsverð áhætta í fjármálakerfinu

Þessi jákvæða þróun gefur þó ekki tilefni til að slakað sé á árvekni gagnvart þeirri umtalsverðu áhættu í fjármálakerfinu sem enn er til staðar.“ Meira
Fastir pennar 04. maí 2013 06:00

Huga verður að grunninum

Eftirtektarverður árangur frumkvöðlanna sem að sprotafyrirtækinu CLARA standa sýnir í hnotskurn um hvers konar verðmæti er að tefla í þessum í geira nýsköpunar og tækni. Meira
Fastir pennar 03. maí 2013 07:00

Fáum 2007 aftur

Einn af mínum uppáhaldshlaupabolum er úr Reykjavíkurmaraþoni Glitnis árið 2007. Bolurinn er úr svona rauðu pólýesterefni sem hrindir frá sér vökva. Ef ég set hann í þvottavél þá kemur hann gott sem þu... Meira
Fastir pennar 03. maí 2013 07:00

Gjald til bjargar Þingvöllum

Óvenjumikil aðsókn kafara hefur verið að Silfru á Þingvöllum það sem af er ári, eins og Fréttablaðið sagði frá fyrr í vikunni. Tvö þúsund kafarar hafa stungið sér í gjána í marz og apríl, miklu fleiri... Meira
  • Fréttir
  • Sport
  • Viðskipti
  • Lífið
  • Skoðun

Mest lesið

Forsíða / Umræðan / Fastir pennar / Hamingjan sanna!
365 miðlar ehf.
Skaftahlíð 24
105 Reykjavík
sími 512 5000