Formúla 1

Hamilton og Rosberg fljótastir á föstudagsæfingum

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Ætli það verði Mercedes í fyrsta og öðru á ráslínu á morgun?
Ætli það verði Mercedes í fyrsta og öðru á ráslínu á morgun? Vísir/Getty
Mercedes liðið eignaði sér æfingar dagsins fyrir ítalska kappaksturinn. Lewis Hamilton var fljótastur á þeirri fyrri en Nico Rosberg á þeirri seinni.

Á fyrri æfingunni varð strax ljóst að Mercedes vélin kann vel við sig á Monza brautinni. Brautin einkennist af löngum beinum köflum og miklum hraða.

Hamilton var hraðastur, annar varð Jenson Button á McLaren og Rosberg varð þriðji. Fjórði varð Fernando Alonso á Ferrari, hann var fljótastur allra sem ekki nota Mercedes vél rétt innan við sekúndu á eftir Hamilton. Kevin Magnussen á McLaren varð fimmti.

Þó nokkuð margir þróunarökumenn fengu tækifæri til að spreyta sig á æfingunni. Giedo van der Garde ók fyrir Sauber í stað Adrian Sutil. Daniel Juncadella ók fyrir Force India. Charles Pic tók sæti Romain Grosjean hjá Lotus í morgun. Roberto Mehri ók fyrir Caterham á meðan Kamui Kobayashi sat og horfði á.

Seinni æfingin var frekar jöfn. Ellefu hröðustu ökumennirnir voru allir á sömu sekúndunni. Gefur það vísbendingar um spennandi tímatöku á morgun.

Rosberg var hraðastur og Hamilton annar. Þar á eftir komu Kimi Raikkonen og Alonso á Ferrari. Valtteri Bottas á Williams varð fimmti og Button á McLaren sjötti.

Grosjean hefði haft gott af fyrri æfingunni því hann átti í talsverðu basli á seinni æfingu dagsins. Hann var iðinn við utanvegaakstur.

Tímatakan er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport og hefst klukkan 11:50 á morgun. Útsending frá keppninni á sunnudag hefst svo klukkan 11:30.


Tengdar fréttir

Mercedesmenn fljótastir á föstudegi og Chilton mun keppa

Nico Rosberg á Mercedes var fljótastur á fyrri æfingu dagsins fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer um helgina. Liðsfélagi hans, Lewis Hamilton var fljótastur á seinni æfingunni á Spa brautinni. Max Chilton hefur endurheimt sæti sitt hjá Marussia.

Ætlar McLaren að yngja upp?

McLaren liðið vinnur nú að þriggja til fimm ára ökumanna áætlun. Hvorugur ökumaður liðsins hefur heyrt hvort hann er inni í þeirri áætlun.

Ricciardo vann í Belgíu

Daniel Ricciardo á Red Bull kom fyrstur í mark í belgíska kappakstrinum rétt í þessu. Annar var Nico Rosberg á Mercedes og þriðji Valtteri Bottas á Williams.

Alonso verður áfram hjá Ferrari

Þrátt fyrir mikinn áhuga frá McLaren þá hefur Fernando Alonso ákveðið að keyra áfram fyrir Ferrari.

Nico Rosberg á ráspól í Belgíu

Nico Rosberg á Mercedes plantaði sér á ráspól fyrir belgíska kappaksturinn sem fram fer á morgun. Lewis Hamilton var annar og Sebastian Vettel þriðji.

Bílskúrinn: Hverjum var um að kenna í Belgíu?

Belgíski kappaksturinn sem fram fór í gær var fyrir margt athyglisverður. Daniel Ricciardo vann sína þriðju keppni og Kimi Raikkonen náði sínum besta árangri á tímabilinu. Allra augu beinast þó að Mercedes þessa stundina. Hvað er að gerast þar? Verður liðið starfhæft á næstunni?

Rosberg: Þetta var dómgreindarleysi

Nico Rosberg lenti aftan á liðsfélaga sínum, Lewis Hamilton í belgískakappakstrinum síðustu helgi með afdrifaríkum afleiðingum fyrir Hamilton.

Renault og Ferrari vilja aflétta breytingabanni

Líkt og Ferrari gaf út fyrir skömmu, vill Renault nú einnig aflétta svokölluðu vélafrosti. Breytingabann er á keppnisvélum Formúlu 1 liða yfir tímabilið, nema að allir vélaframleiðendur samþykki að aflétta því.

Ferrari efast um að hægt verði að ná Mercedes 2015

Ferrari liðið hyggst mæta með fullkomlega endurhannaðan bíl til leiks 2015 en efast um að það dugi til að ná Mercedes. Gæði Mercedes vélarinnar séu of mikil til að hægt sé að snúa taflinu við í einu stökki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×