Formúla 1

Hamilton mögulega vísað úr keppni: Ekki mitt að passa þrýstinginn

Kristinn Ásgeir Gylfason skrifar
Lewis Hamilton gæti verið vísað úr keppni.
Lewis Hamilton gæti verið vísað úr keppni. Vísir/Getty
Lewis Hamilton kom fyrstur í mark í ítalska kappakstrinum. Athugun FIA á loftþrýsting í dekkjum Mercedes gæti leitt til brottvísunar Hamilton. Hver sagði hvað eftir skemmtilega keppni?

„Ég er að verða gamall, það var mjög erfitt að verjast liðsfélaga mínum en það var frábært að koma yfir línuna,“ sagði sagði Felipe Massa á verðlaunapallinum.

„Við höfum verið kallaðir til dómaranna. Við stilltum þrýstinginn eftir leiðbeiningum Pirelli sem er allt sem við getum gert. Þess vegna vildum við hafa bil fyrir aftan Lewis, ef við fáum refsingu. Við höfum ekki gert neitt rangt, þetta var bara til öryggis,“ sagði Paddy Lowe, tæknisstjóri Mercedes.

„Við heyrðum undir lok keppninnar að loftþrýstingur í dekkjum hefði verið skoðaður og við höfum verið boðaðir til dómaranna. Það sem ég veit um þetta er að mestu komið úr slúðri á þjónustusvæðinu.

„Ég get ekki tjáð mig um þetta. Ég veit ekkert um þetta og vissi ekki af þessu,“ sagði Hamilton, aðspurður um loftþrýstinginn í öðru afturdekki bílsins. Hann var 0,3 psi undir ráðleggingum Pirelli.

„Það er ekki mitt að passa þrýstinginn. Liðið hefur staðið sig vel alla helgina. Formúla 1 snýst um að kreista allt út úr sér og bílnum. Meira get ég ekki sagt, ég er ekki búinn að hitta neinn,“ bætti Hamilton við.

Valtteri Bottas kom í mark í fjórða sæti. Hann gæti þó orðið þriðji.Vísir/Getty
Pirelli hefur völd til að setja reglur um lágmarksloftþrýsting og fleira. Brot á slíkum reglum jafnast á við brot á öðrum tæknireglum. Hamilton eða Mercedes gætu þurft að sæta refsingu fyrir vikið.

Refsingin gæti falið í sér að einhverjum tíma yrði bætt við heildarkeppnistíma Hamilton og því hvatti Mercedes Hamilton til að gefa allt í botn undir lok keppninnar.

Nánar verður fylgst með framvindu þessa máls hér á Vísi.

„Helgin í heild er búin að vera afar erfið. Það var vandamál með undirvagninn sem gerði það að verkum að ég þurfti að nota gömlu vélina sem sprakk svo í lokin,“ sagði Nico Rosberg sem datt úr keppni þegar tveir hringir voru eftir.

„Þetta var góður dagur, ég hélt aðeins niður í mér andanum á síðasta hring þegar ökumennirnir okkar börðust á brautinni. Við leyfðum þeim að keppa,“ sagði Pat Symonds tæknistjóri Williams.

„Ég býst við að ef til refsingar kemur verður hún hörð. Það er almennt hart tekið á brotum á tæknilegum reglum, þetta er líka öryggisatriði. Brottvísun úr keppni er refsingin sem notuð er í þessum tilfellum eftir minni reynslu,“ bætti Symonds við.

„Ég held að loftþrýstingurin hafi verið athugaður á ráslínunni. FIA notar sinn mælir til að mæla svona. Þetta er öryggisatriði og það þýðir brottvísun,“ sagði Rob Smedley frammistöðustjóri Williams.

„Ég hefði viljað ná honum undir lokin og hefði hugsanlega getað það hefðu verið nokkrir hringir í viðbót. Það er miklu skemmtilegra að vera á verðlaunapallinum en vera fjórði,“ sagði Valtteri Bottas sem er fjórði eins og er.


Tengdar fréttir

Mercedes í sérflokki á föstudagsæfingum

Lewis Hamilton á Mercedes var fljótastur á báðum æfingum dagsins. Liðsfélagi hans, Nico Rosberg varð annar á báðum æfingum. Bilið milli þeirra var nánast ekkert á seinni æfingunni.

Lewis Hamilton vann á Monza

Lewis Hamilton á Mercedes kom fyrstur í mark í ítalska kappakstrinum. Sebastian Vettel á Ferrari varð annar og Felipe Massa á Williams varð þriðji.

Lewis Hamilton á ráspól á Monza

Lewis Hamilton var fljótastur á Mercedes bílnum og náði sínum sjöunda ráspól í röð. Kimi Raikkonen varð annar á Ferrari og liðsfélagi hans, Sebastian Vettel varð þriðji.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×