Fótbolti

Hallgrímur á leið til nýliðanna

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Hallgrímur var í stóru hlutverki hjá OB á síðasta tímabili.
Hallgrímur var í stóru hlutverki hjá OB á síðasta tímabili. vísir/getty
Hallgrímur Jónasson er á leið til Lyngby frá OB. Þetta kemur fram á Fótbolta.net.

Hallgrímur, sem er þrítugur, hefur leikið í Danmörku frá árinu 2011, fyrst með SönderjyskE og svo síðasta árið með OB.

Lyngby er nýliði í dönsku úrvalsdeildinni en liðið vann B-deildina á síðasta tímabili.

Hallgrímur lék alla 33 leiki OB á síðasta tímabili en liðið endaði í 7. sæti dönsku deildarinnar.

Flest bendir til þess að báðir Íslendingarnir í herbúðum OB séu á förum frá félaginu en Ari Freyr Skúlason er væntanlega að ganga í raðir Lokeren í Belgíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×